- Advertisement -

Segir Miðflokkinn á móti EES og vill takmarka hversu margir mega búa á Íslandi

„Miðflokkurinn hefur nú opinberað, að einhverju leyti óvart, að hann er á móti EES-samningnum og vill takmarka fjölda þeirra sem búa á Íslandi. Hann stendur nú frammi fyrir því að svara spurningum um hvernig samfélagið á að líta út ef mikilvægasti viðskiptasamningur Ísland – íslenskt hagkerfi hefur fimmfaldast að umfangi frá því að hann tók gildi – verður ekki lengur virkur. Enn fremur þarf hann að segja nákvæmlega hversu marga íbúa landið má hafa samkvæmt hugmyndum Miðflokksins, hvernig samsetning þess íbúafjölda má vera og hvernig flokkurinn aðgreinir „alvöru Íslendinga“ frá hinum,“ þetta er upphaf greinar Þórðar Snæs Júlíussonar á vefsíðunni Kjarnyrt.

Lesum aðeins lengur:

„Vatnaskil urðu í stjórnmálum á Íslandi í síðustu viku. Þá fór fram sérstök umræða um skýrslu starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd. Sá sem bað um sérstöku umræðuna var Snorri Másson, nýlega kjörinn varaformaður Miðflokksins. Í ræðum sínum sagðist hann meðal annars vilja skoða að Ísland skoði að segja sig úr samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES), sem veitir landinu aðgengi að innri markaði Evrópu meira og minna án tolla og landsmönnum frelsi til að lifa, læra og starfa hvar sem er innan saman markaðar. Okkar „heimamarkaður“ inniheldur því 450 milljón viðskiptavini í stað þess að telja um 393 þúsund manns. 
Um er að ræða fyrsta skiptið sem forystumaður Miðflokksins leggur fram þessa stefnu, að Ísland ætti að skoða úrsögn úr sínum mikilvægasta viðskiptasamningi. 
Snorri sagðist líka vilja hætta alfarið móttöku flóttafólks, loka því sem næst alfarið fyrir komu fólks utan EES til Íslands, takmarka verulega þjónustu við fólk sem hingað hefur flutt, auka heimildir til að vísa því úr landi og viðraði loks glænýjar hugmyndir um að takmarka íbúafjöldann á Íslandi, án þess að segja hreint út hversu margir ættu nákvæmlega að fá að búa á Íslandi.
Án þess, að því er virðist, að átta sig almennilega á því þá steig Snorri stærra skref frá innfluttu MAGA-handbókinni sem Miðflokkurinn er að spila harða hægris-pólitíska leikinn sinn eftir. Í stað þess að senda hundaflautu-dulkóðuð skilaboð án þess að segja raunverulegt markmið upphátt þá fór hann að syngja hástöfum, og fara skýrt með textann. 
Miðflokkurinn er á móti EES-samningnum og vill takmarka hversu margir mega búa á Íslandi.“

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: