„Skattlagningarfrumvörpin koma á færibandi og núna stefnir í stórkostlega skattlagningu á bifreiðaeigendur.“
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.
Alþingi: „Nýverið birtist kolsvört skýrsla vegna uppgangs erlendra glæpagengja. Íslendingar eiga betra skilið en að vera skattpíndir til að borga undir misnotkun erlendra glæpagengja á velferðarkerfunum okkar. Tökum til þar sem er þörf,“ sagði Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki á Alþingi í gær.
Síðar sagði Nanna Margrét: Svo er enn annað mál. Ríkisstjórnin getur ekki svarað í hvað tugir milljarða fara sem eru skráðir sem útgjöld til loftslagsmála. Hvernig má það vera? Svo kemur hver ráðherrann á fætur öðrum og segir að það sé svo mikil krafa um meiri eyðslu og að hana þurfi að fjármagna. Miðflokkurinn er ekki með þær kröfur. Almenningur var ekki með þær kröfur þegar hann kaus planið. Getum við ekki sammælst um að skera fituna í burtu og fara að sinna hér almennilega grunnþjónustunni í stað skattpíningar á heimili landsins sem eru nú þegar ein skattpíndustu heimili veraldar? Miðflokkurinn er tilbúinn að hjálpa ríkisstjórninni að standa við sín eigin kosningaloforð um hagræðingu.
Forseti. Ég er samt farin að óttast að það sé ekki raunverulegur vilji til þess. Það hafi ekki verið neitt plan, aðeins leikrit til að komast til valda.“
Skattlagningarfrumvörpin koma á færibandi…
Mér þykir við hæfi að setja hérna inn upphafi ræðu Nönnu Margrétar:
„Ég hef verið hugsi: Af hverju er verið að hækka skatta á almenning þegar ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu að gera það ekki? Er svona lítið mál fyrir þessa flokka að svíkja loforðin? Skattlagningarfrumvörpin koma á færibandi og núna stefnir í stórkostlega skattlagningu á bifreiðaeigendur. Er það það sem við þurfum í núverandi vaxta- og verðbólgumhverfi? Tilgangurinn er sagður að bæta vegina og þeir greiði sem nota. Staðreyndin er samt sú að hátt í 80 milljarðar eiga að koma í ríkiskassann úr vösum bifreiðaeigenda en ríkisstjórnin ætlar aðeins að setja 46 milljarða til vegamála.“