- Advertisement -

Segir útgjöldin vera langt umfram hefðbundnar launa- og verðlagshækkanir

Heilbrigðisstofnanir og Sjúkrahúsið á Akureyri reyna að fylla stöður lækna bæði með aukavinnu lækna af höfuðborgarsvæðinu sem og læknum sem koma erlendis frá.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður fjárlaganefndar.

Alþingi: Ragnar Ingólfsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu á Alþingi í gær. Ræða hans er löng. Þess vegna verður henni skipt niður í nokkra kafla. Hér er gripið niður í kaflann: Kjarasamningar lækna og annarra heilbrigðisstétta.

Á fundum nefndarinnar hefur umsagnaraðilum verið tíðrætt um kostnaðaráhrif af kjarasamningum lækna. Áhrifin koma bæði fram sem beinn kostnaðarauki stofnana en einnig sem skortur á starfsfólki sem myndast ekki síst með verkefninu um styttingu vinnutíma. Heilbrigðisstofnanir og Sjúkrahúsið á Akureyri reyna að fylla stöður lækna bæði með aukavinnu lækna af höfuðborgarsvæðinu sem og læknum sem koma erlendis frá. Útgjöld vegna þessa eru langt umfram hefðbundnar launa- og verðlagshækkanir. Laun heilbrigðisstétta og sérstaklega lækna eru nú orðin mjög samkeppnishæf við laun lækna t.d. í Svíþjóð en engu að síður sér ekki fyrir endann á mönnunarvanda. Nám á heilbrigðissviðum verður stöðugt sérhæfðara og skortur á starfsfólki er að miklu leyti alþjóðlegt vandamál.

Meirihlutinn bendir á nauðsyn þess að fyrirkomulag á samningagerð og útfærslu kjarasamninga við heilbrigðisstéttir verði tekið til gagngerrar endurskoðunar. Brýnt er að bæði fjármála- og efnahagsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið setji þessi mál í algeran forgang. Nefndin hefur óskað eftir ítarlegum upplýsingum um kostnaðarmat vegna kjarasamnings ríkisins við lækna sem skrifað var undir í nóvember 2024 og hvernig því er mætt í fjárreiðum heilbrigðisstofnana.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: