- Advertisement -

Segja hugmyndir borgarlínu meingallaðar

Stjórnmálaályktun aðalfundar Félags sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási, Ártúns- og Norðlingaholti

Félag sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási, Ártúns- og Norðlingaholti lýsir yfir ánægju með áframhaldandi stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna. Stjórnarsamstarf þessara flokka er líklegast til að stuðla að áframhaldandi stöðugleika í efnahagslífinu og bættum lífskjörum landsmanna.

Mikill hallarekstur ríkissjóðs er þó áhyggjuefni og er skorað á ríkisstjórnina að ná jafnvægi í rekstri sem fyrst með ábyrgri fjármálastjórn. Mikilvægt er að staðið verði við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að skattar verði ekki hækkaðir.

Félagið skorar á ríkisstjórnina og borgaryfirvöld  að taka til gagngerra endurdurskoðunar   fyrirliggjandi áætlunum um borgarlínu. Sýnt hefur verið fram á að verkefnið er bæði gífurlega kostnaðarsamt og óarðbært. Áætlanir um borgarlínu virðast vera meingallaðar en myndu kosta yfir hundrað milljarða króna sem yrðu fjármagnaðar með auknum álögum á skattgreiðendur. Ein meginhugmynd borgarlínu felst í því að fækka verulega núverandi akreinum almennrar umferðar. Slíkar þrengingar myndu enn auka á umferðartafir sem myndu til viðbótar valda Reykvíkingum ómældum kostnaði vegna aukinna tímatafa í umerðinni sem og óþægindum og heilsutjóni vegna aukinnar mengunar. Slíkar umferðartafir myndu koma sér afar illa fyrir íbúa efri byggða borgarinnar og gjaldtaka vegna verkefnisins myndi einnig leggjast þyngst á þá samkvæmt þeim hugmyndum sem komið hafa fram um framkvæmd gjaldtökunnar. Nærtækara er að efla almenningssamgöngur í Reykjavík með minni fyrirhöfn og tilkostnaði með því að bæta núverandi kerfi strætisvagna sem er mjög vannýtt. 

Fyrir hönd félagsins:

Guðrún Helga Theodórsdóttir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: