Sigmundur Davíð efast um að Kristrún geri sér grein fyrir efnahagsvandanum

Alþingi: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók þátt í umræðunni um efnahagsmál.
„Það er ekki að heyra á hæstvirtur forsætisráðherra að verkstjóri ríkisstjórnarinnar, ríkisstjórnin sjálf, geri sér grein fyrir umfangi þess vanda sem við er að eiga í íslensku efnahagslífi þessi dægrin. Við fáum bara nýja frasa. Frasi hæstvirts forsætisráðherra um verðmætasköpunarhaustið er orðinn að álíka miklu gríni og frasinn um sleggjuna til að berja niður vexti og verðbólgu. Það eru engin viðbrögð af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hæstvirtur forsætisráðherra vísar á Seðlabankann, að ríkisstjórnin sé að fylgjast með og spá í hlutina, en ef það þurfi að bregðast við í millitíðinni þá eigi Seðlabankinn að gera það. Hvert telur ríkisstjórnin hlutverk sitt vera, ef eitthvert, í efnahagsmálum ef hún sér ekki ástæðu til að bregðast strax við þeim stóru áföllum sem riðið hafa yfir íslenskt efnahagslíf á þessu svokallaða verðmætasköpunarhausti?
Hæstvirtur fjármálaráðherra tjáir sig iðulega eins og einhvers konar annálaritari. Hann segist vera að fylgjast með þróuninni og ætlar væntanlega að skrá hagsögu Íslands þegar hann hefur lokið störfum í ráðuneytinu. En nú eru hæstvirtur forsætisráðherra og fjármálaráðherra og allir ráðherrar þessarar ríkisstjórnar og þingmenn stjórnarmeirihlutans komnir í ríkisstjórn. Það dugar ekki fyrir þá að fylgjast með, þeir þurfa að fara að taka ákvarðanir. En jú, vissulega væri gott að menn fylgdust með. Hæstvirtur forsætisráðherra sagðist vera í samtali við fólk en ekki í samtali við fulltrúa sveitarfélaga á Norðvesturlandi. Það samtal má greinilega bíða að mati hæstvirts forsætisráðherra. Það þarf alvörusamtal, það þarf að setja sig inn í hlutina af alvöru, gera sér grein fyrir umfangi vandans og bregðast við,“ sagði Sigmundur Davíð.