- Advertisement -

Sigmundur Davíð segir Evrópu stefna í samfélagslegt sjálfsmorð

„Þetta er allt pýramídasvindl,“ segir Sigmundur og bætir við að þegar kerfið byrji að hrynja sé reynt að stækka það enn frekar í stað þess að taka á undirliggjandi vandamálum.

Umræðan/Nútíminn: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var gestur Frosta Logasonar í Spjallinu þar sem hann fór ófögrum orðum um stöðu Evrópusambandsins. Að hans mati stefnir Evrópa í alvarlegt efnahagslegt og samfélagslegt hrun vegna ósjálfbærrar stefnu í velferðarmálum, fólksflutningum og regluvæðingu atvinnulífsins.

Í þættinum ræðir Sigmundur meðal annars um stöðu Frakklands, vaxandi skuldir ríkja innan Evrópusambandsins og þá þróun að velferðarkerfi séu rekin langt umfram það sem þau þola í raun.

Í umræðunni ræða þeir Sigmundur og Frosti að Evrópa sé aðeins um 10 prósent af mannkyninu og framleiði um 14 prósent af allri heimsframleiðslu, en greiði samt út um 60 prósent af öllum velferðargreiðslum á jörðinni. Sigmundur segir þessa stöðu augljóslega ósjálfbæra.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Velferðarkerfi margra Evrópuríkja séu í raun gjaldþrota.

Að hans mati blasir við að velferðarkerfi margra Evrópuríkja séu í raun gjaldþrota, þar sem lífeyrir og heilbrigðisþjónusta séu að mestu fjármögnuð beint úr skatttekjum fremur en uppsöfnuðum sjóðum.

Sigmundur gagnrýnir einnig þá stefnu að bregðast við lágri fæðingartíðni með auknum innflutningi á fólki. Hann líkir efnahagsstjórnun Evrópusambandsins við píramídasvindl þar sem stöðugt þurfi að bæta við fleiri til að halda kerfinu gangandi.

„Þetta er allt pýramídasvindl,“ segir Sigmundur og bætir við að þegar kerfið byrji að hrynja sé reynt að stækka það enn frekar í stað þess að taka á undirliggjandi vandamálum.

Hann telur að þessi nálgun skapi aðeins vaxtartölur til skamms tíma en leysi ekki raunverulegan skort á verðmætasköpun.

Sigmundur tekur Þýskaland sem dæmi um afleiðingar stefnunnar. Hann segir að þar sé orðið nær ómögulegt að byggja nýjar verksmiðjur vegna orkuskorts, hás orkuverðs og sífellt flóknara regluverks. Afleiðingin sé að iðnaður flytjist úr landi og verðmætasköpun dragist saman.

Að hans mati er Evrópa sjálf að grafa undan samkeppnishæfni sinni með því að leggja auknar byrðar á atvinnulíf á sama tíma og samfélögin eldast hratt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: