„Við getum haldið áfram í þessa veru þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur beinlínis lagt stein í götu frjálsra fjölmiðla á Íslandi.“
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
„Menn hafa rætt um það hér hvort 25% eða 22% styrkur sé við hæfi og Sjálfstæðisflokkurinn kemur hér upp og er með böggum hildar yfir því að Mogginn fái ekki sitt og fyrst svo sé beri að fella málflutninginn með öllu,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson á Alþingi.
„Hvernig hefur Sjálfstæðisflokkurinn hagað sér í umræðu um fjölmiðla á Íslandi um áraraðir? Eigum við að skoða söguna í þeim efnum? Eigum við að fara 50 ár aftur í tímann þegar Vísir klofnaði og Dagblaðið varð til? Sjálfstæðisflokkurinn, sem var við völd á þeim tíma, lagðist allur gegn því að Dagblaðið yrði til með ráðum og dáð, í bankakerfinu o.s.frv.
Um þetta hafa verið skrifaðar heilu bækurnar. Það eru fjöldamörg vitni að þessu. Og hvað gerðist svo stuttu seinna þegar reynt var að koma á laggirnar sjálfstæðu dagblaði einum 25 árum síðar, Fréttablaðinu? Þá neitaði formaður bankaráðs Landsbankans forkólfum Fréttablaðsins um fyrirgreiðslu. Og hver var þessi formaður bankaráðs? Jú, hann var skipaður af Sjálfstæðisflokknum. Við getum haldið áfram í þessa veru þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur beinlínis lagt stein í götu frjálsra fjölmiðla á Íslandi.

Davíð lék aðalhlutverkið í ágangi gegn Fréttablaðinu. Halldór reyndi að telja honum hughvarf.
Eigum við að ræða fjölmiðlafrumvarpið? Þar var beinlínis lagt á ráðin um að banna ákveðna fjölmiðla á Íslandi og leggja fram frumvarp þess efnis af þáverandi formanni Sjálfstæðisflokksins en kollegi hans í ríkisstjórn, þáverandi formaður Framsóknarflokksins, taldi að þetta bryti stjórnarskrá. Viðkomandi formaður sagði honum þá að breyta því sjálfur.
Þessa sögu þekkjum við. Og þegar Sjálfstæðisflokkurinn kemur hingað upp í pontu til að ræða það að núverandi stjórnvöld séu með einhverju móti að ráðast á Morgunblaðið þá skulu þeir hafa sína eigin sögu í huga. Hún er öll brennd því marki að leggja stein í götu ákveðinna fjölmiðla sem eru þeim flokki ekki að skapi. Þetta skal vera á hreinu því að þessi saga geymist í bókum og viðtölum og öðrum heimildum sem eru mjög skýrar í þessa veru. Höfum þetta á hreinu,“ sagði Sigmundur Ernir.