- Advertisement -

Sigurjón benti á hið augljósa og fékk bágt fyrir

Menntamálaráðherrann, Logi Einarsson, vill fleiri fréttir héðan og þaðan af landinu. Til að freista þess að það gangi eftir greip hann til ráðs að lækka ögn hæstu styrkina. Sem fara til Moggans og Sýnar.

Þar með verður tækifæri til að auka við styrki fjölmiðla á landsbyggðinni. Mikið hefur verið sótt að Sigurjóni Þórðarsyni þar sem hann er þeirrar skoðunar að Mogginn fá nóg. Ekki síst þar sem ritstjórmn blaðsins sé í „herferð“ gegn Flokki fólksins.

Ekki bara það. Í þingumræðu um þetta viðkvæma mál kom Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir í pontu og lýsti vilja sínum til að gera betur við Moggann. Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins, benti á að Áslaug Arna er dóttir stjórnarformanns útgáfufélags Moggans og því kannski ekki alveg hlutlaus.

Við þetta hljóp sumum þingmönnum kapp í kinn. Eftir stendur spurningin hvenær þingmenn missa hæfi sitt og hvenær ekki.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: