Skattahækkanir og auknar opinberar álögur vinna gegn aukinni verðmætasköpun
Í þessu árferði duga engin innantóm slagorð. Það dugar ekki að nota frasa eins og tiltekt og verðmætasköpunarhaust. Það eina sem dugar eru skýrar aðgerðir sem fólk og fyrirtæki finna strax fyrir.
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Alþingi: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokks, efndi til umræðu um stöðu efnahagsmála, á Alþingi fyrr í dag. Hér á eftir fer fyrri ræða Guðrúnar:
„Ég vil byrja á því að þakka hæstvirtum forsætisráðherra fyrir að verða við beiðni minni um þessa sérstöku umræðu hér í dag um efnahagsmál því að staðan í íslensku hagkerfi er alvarleg. Hún kallar á ábyrg stjórnmál og ekki umbúðapólitík. Það er ekki útlit fyrir loðnuveiði á þessu ári. Horfur í kolmunna og makríl eru daprar. Kísilverið á Bakka er lokað tímabundið. Um 600 manns misstu vinnuna við gjaldþrot Play. Elkem á Grundartanga starfar ekki á fullum afköstum og einnig liggur stór hluti starfsemi Norðuráls niðri eftir lokun kerskála á Grundartanga vegna alvarlegrar bilunar.
Merkin úr hagkerfinu endurspegla sama vanda. Aðalhagfræðingur Landsbankans telur nær engar líkur á vaxtalækkun við þessar aðstæður. Verðbólga hefur hækkað frá hausti og er yfir markmiði Seðlabankans. Undirliggjandi mælikvarðar ýta í sömu átt. Þetta er veruleiki sem snertir heimili og fyrirtæki beint í gegnum fjármögnunarkjör. Atvinnulífið á undir högg að sækja. Hópuppsögn var tilkynnt hjá Icelandair í þessari viku. Uppsagnir hafa orðið hjá sjónvarpsstöðinni Sýn. Að sama skapi höfum við horft upp á umfangsmiklar uppsagnir í sjávarútvegi undanfarnar vikur. Byggingariðnaðurinn er lykilstoð fyrir atvinnu, húsnæði og fjárfestingu. Samtök iðnaðarins lýsa ástandinu kolsvörtu í kjölfar óvissu sem hefur grafið undan markaði. Það dregur úr lánveitingum, sölutími lengist og verkefni færast til. Þegar þessi grein hikstar þá hefur það í för með sér verulegar afleiðandi afleiðingar fyrir hagkerfið í heild. Óvissan á fasteignamarkaði er gríðarleg, svo mikil að formaður Félags fasteignasala hefur sagt að hún hafi ekki upplifað aðra eins óvissu á öllum sínum starfsferli.
Það eina sem dugar eru skýrar aðgerðir…
Virðulegi forseti. Í þessu árferði duga engin innantóm slagorð. Það dugar ekki að nota frasa eins og tiltekt og verðmætasköpunarhaust. Það eina sem dugar eru skýrar aðgerðir sem fólk og fyrirtæki finna strax fyrir. Ég beini því eftirfarandi spurningum til hæstvirts forsætisráðherra:
Hvernig verður tryggt að tekjur sem fara fram úr áætlun nýtist til að bæta afkomu og lækka vaxtabyrði ríkissjóðs þannig að fjármögnunarkjör batni raunverulega? Hvert verður viðmiðið um afgang og skuldaþróun næstu 12 mánuði og hvernig verður því viðmiði fylgt eftir? Hvernig hyggst ríkisstjórnin hindra að nýjar álögur og skattahækkanir, t.d. lækkun frítekjumarks leigutekna sem kynnt var í húsnæðispakkanum og er bein skattahækkun á venjulegt fólk í landinu, fari beint út í hærra verðlag og leiguverð á næstu mánuðum? Hvernig verður útgjöldum endurraðað án þess að verðbólguþrýstingur aukist? Hvaða liðir standa til endurskoðunar strax í fjárlögum og hvaða liðir bíða? Hvaða aðgerðir sér ríkisstjórnin fyrir sér að ráðast í til að efla og styrkja rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi strax í dag og til frambúðar til að verja íslensk störf og fjárfestingu í útflutningsgreinum sem nú dragast saman?
Tíminn til að sýna festu er núna.
Við höfum þegar séð hvað virkar þegar áföll dynja yfir og við vitum hvað virkar þegar kemur að því að efla samkeppnishæfni landsins. Ríkisstjórn sem ætlar að rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu hlýtur að átta sig á því að sú stefna sem hingað til hefur verið lögð á borð gengur þvert á öll slík loforð. Skattahækkanir og auknar opinberar álögur vinna gegn aukinni verðmætasköpun, en það hefur verið það eina sem ríkisstjórnin hefur sett á dagskrá og snertir rekstrarumhverfi fyrirtækja í landinu. Hvernig hyggst ríkisstjórnin minnka kostnaðaráhrif á heimili og fyrirtæki næstu mánuði? Hvaða skattkerfis- og gjaldheimtuliðir verða endurskoðaðir strax til að forða hækkunum sem fara beint út í leiguverð, byggingarkostnað og verðlag?
Og að lokum um samhæfingu hagstjórnar. Hver verða skýr viðbragðsskilyrði ríkisstjórnar þegar verðbólguvæntingar færast upp á við eða útflutningstekjur dragast saman? Skilaboðin sem koma frá heimilum og fyrirtækjum eru þau sömu: Tíminn til að sýna festu er núna. Og festan mælist ekki í orðum heldur í öryggi sem fólk finnur í daglegu lífi. Óveðursskýið sem vofir yfir hagkerfinu hangir ekki í neinum hliðarveruleika við þessa ríkisstjórn.