- Advertisement -

Smárafhlöður er stórhættulegar

Neytendur Smárafhlöður svipa til einnar krónu myntar. Þó ekki fari mikið fyrir þeim getur hættan af þeim verið mikil. Ef barn gleypir þannig rafhlöðu „…getur það valdið alvarlegum bruna á innan við tveimur klukkustundum,“ segir á vefsíðu Neytendastofu. 

Þar segir einnig að á flestum heimilum séu raftæki með smárafhlöðum. Rafhlöðurnar eru í mörgum leikföngum sem gefa frá sér hljóð, hljóðbókum fyrir börn, lyklakippum, heyrnatækjum, úrum, fjarstýringum fyrir bæði sjónvörp, DVD tæki og hljómflutningsgræjum, eldhús- og baðvogum, kertum sem ekki eru með lifandi ljósi, auk annarra lítilla raftækja.

Raftækin eiga það sameiginlegt að auðvelt er að opna lokið þar sem að rafhlaðan er. „Ganga þarf úr skugga um að rafhlöðuhólfið sé öruggt og tryggja að börn hafi ekki aðgang að þeim ef að hólfið þar sem að rafhlaðan er geymd er ekki örugg. Þá þarf að gæta þess að auka rafhlöður séu geymdar þar sem börn ná ekki til og að notuðum rafhlöðum sé fargað tafarlaust,“ segir á vefsíðunni.

Ef barn gleypir smárafhlöðu, eða grunur er um það, þarf að leita til læknis tafarlaust.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Neytendastofa hvetur fólk til að ganga úr skugga um að hlutir með litlum batteríum séu á öruggum stöðum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: