Alþingi:
Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, skrifaði:
Snorri Másson talaði skýrt um það í dag á Alþingi að honum finnist koma til greina að ganga úr EES samstarfinu. Hann sagði það berum orðum. Það er nokkuð augljóst að varaformaður Miðflokksins áttar sig ekki á að EES samstarfið byggist á gagnkvæmni. Tugþúsundir Íslendinga vinna, læra og njóta réttinda í Evrópu á grundvelli þessa samstarfs sem í raun er undirstaða þeirrar velferðar sem við búum við í dag. Það gildir líka um kjósendur Miðflokksins.
En það fylgdi ekki sögunni hjá honum að íslensk fyrirtæki myndu þá missa starfsfólk í tugþúsundatali. Ríki og sveitarfélög misstu þúsundir starfsmanna úr velferðarþjónustu. Tugþúsundir Íslendinga, líka kjósendur Miðflokksins, misstu réttindi sín í Evrópu til búsetu og atvinnu. Þar með talið þúsundir Íslendinga sem búa á Spáni og víðar. Þetta er vanhugsaður og varasamur málflutningur og ekkert annað en aðför að atvinnulífi og velferð þjóðarinnar. Ef við lokum á aðra, þá loka aðrir á okkur. Hræðsla Miðflokksins við fjórfrelsið sem EES samstarfið tryggir er andstætt íslenskum hagsmunum.