
Umræðan/Facebook: Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi VG skrifaði:
„Þessi líflega mynd var tekin í byrjun þessa kjörtímabils þegar við í VG og Sósíalistar mynduðum bandalag við kosningar í nefndir og ráð. Í einhverjum tilvikum vorum við varamenn þeirra í ráðum og þau fyrir okkur. Við fulltrúarnir hittumst öðru hvoru til að leggja línurnar fyrir starfið framundan og vorum einatt í virku samtali á fundum borgarstjórnar varðandi afgreiðslu á málum, stóðum oft saman að bókunum og greiddum raunar í flestum tilvikum atkvæði á sama veg.
Þegar síðasti borgarstjórnarmeirihluti sprakk með eldglæringum stigu oddvitarnir, Líf og Sanna, það skynsamlega skref að mynda eina blokk í þeim samningaviðræðum sem fyrir lágu. Það er sannfæring mín að sú ákvörðun hafi átt einna stærstan þátt í því að það tókst að höggva á hnútinn í borginni og mynda starfhæfan meirihluta. Í ljósi þessa góða og árangursríka samstarfs bind ég miklar vonir við það sameiginlega framboð á vinstri vængnum sem nú er unnið hörðum höndum að því að gera að veruleika. Tryggjum róttækni og félagslegar áherslur í Ráðhúsinu í vor!“