- Advertisement -

„Stjórnvöld hafa ekki unnið eftir því skipulagi sem hefur verið lögfest“

Það er t.d. sami sýslumaðurinn nú á Norðurlandi eystra og á Austurlandi og Norðurlandi vestra og á Vesturlandi og gott ef það er ekki á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum.

Sigurjón Þórðarson Flokki fólksins.

„Það er ekki hægt að horfa fram hjá því í þessari umræðu, en hér hafa stjórnarandstæðingar verið heitir á móti frumvarpinu, og það er rétt að rifja það upp, að á liðnum árum hafa stjórnvöld ekki unnið eftir því skipulagi sem hefur verið lögfest,“ sagði Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks fólksins, sem er einn þriggja stjórnarflokka.

Sigurjón heldur áfram: „Það hafa ekki verið skipaðir sýslumenn í embætti sem hafa verið laus. Það er t.d. sami sýslumaðurinn nú á Norðurlandi eystra og á Austurlandi og Norðurlandi vestra og á Vesturlandi og gott ef það er ekki á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum.

Það er auðvitað alvarlegt ef ráðuneytið og viðkomandi ráðherra hafa bara verið að framfylgja einhverju allt öðru skipulagi með einhverjum svona undanþáguheimildum í lögum til þess að framfylgja því skipulagi sem þeir vilja koma á en ekki vinna eftir gildandi lögum. Það er svolítið sérstakt þegar á í hlut embætti sem gengur út á það að vera stjórnvald í héraði, halda utan um gögn og vera fulltrúi ríkisvaldsins úti á svæðunum. Þetta er auðvitað það sem maður óttast líka.

Í vinnunni fram undan verða menn að horfa á kostnað ríkisins og ekki einungis það heldur einnig þeirra sem eru að sækja þjónustu til sýslumanna og það sé ekki verið að velta auknum kostnaði á almenning sem býr vítt og breitt um landið. Það er nefnilega svo með miðlægar stofnanir sem eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu að þjónustan verður stundum dýrari ef fólk þarf að sækja sérverkefni eða sérþjónustu frá viðkomandi stofnunum út á landið.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: