- Advertisement -

Stöndum með grænlensku þjóðinni

Alþingi: „„Megir þú lifa áhugaverða tíma,“ er forn speki sem á því miður við í dag,“ sagði Dagbjört Hákonardóttir Samfylkingu á Alþingi í gær.

„Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að enginn hér á Alþingi vilji sjá áframhaldandi þróun heimsmála á þann veg sem hefur raungerst núna að undanförnu, eða ég ætla rétt að vona ekki, því að um þessar mundir reynir sem aldrei fyrr á vilja og getu okkar þingmanna til að standa af öllu afli með grænlensku þjóðinni og tala um Grænland hér í þessum þingsal — vegna þess að það virkar. Ég nefni hérna að Ísland hefur t.d. gegnt algjöru lykilhlutverki í átt að því að Norðurlandaríkin viðurkenni fulla aðild Grænlands að Norðurlandaráði ásamt Færeyjum og Álandseyjum,“ sagði Dagbjört.

„Þessi umræða hefur staðið yfir í einhvern tíma og einhver ár en hefur að öðrum ólöstuðum verið leidd áfram kröftuglega af hálfu Bryndísar Haraldsdóttur, sem var forseti Norðurlandaráðs árið 2024, og Oddnýjar Harðardóttur, þáverandi þingmanns Samfylkingarinnar sem þá var varaforseti. Stuðningur Íslands við sjálfsákvörðunarrétt Grænlands er og verður vonandi þverpólitískur. Það er, eins og ég segi og ítreka, mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr að við höldum áfram á sömu braut í öllu okkar alþjóðastarfi. Þetta á alls staðar við; sjálfsákvörðunarréttur smáríkja og þjóða og virðing fyrir landamærum. Við verðum að sama skapi að styðja Dani áfram í þeirri vegferð sem þeir eru í núna í samskiptum við Bandaríkjastjórn. Gleymum því samt aldrei að oft er rætt um hvað henti Grænlandi en það ákveða þeir sjálfir. Þeir hafa samt sem áður sagt að standi þeir frammi fyrir vali velji þeir að vera hluti af konungsríkinu Danmörku, vera norræn Norðurlandaþjóð, vera hluti af Evrópusambandinu. Við megum hins vegar ekki gleyma því að við viljum styðja þau áfram til þeirrar áttar sem þau vilja sjálf sjá fyrir sína framtíð. En tölum um Grænland. Ég biðla til þingheims um að gera svo.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: