- Advertisement -

Guðrún: Stöndum upp og verjum hagsmuni íslensks atvinnulífs af fullri festu

Kristrún Frostadóttir verður að stíga fram, axla ábyrgð og kalla saman formenn allra flokka á Alþingi.

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins.

Stjórnmál: Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins slrifaði rétt í þessu:

ESB hefur nú sýnt klærnar og staðfest ákvörðun um verndartolla á kísilmálm þar sem Ísland fær enga undanþágu, þrátt fyrir EES samninginn og þátttöku okkar á innri markaði. Þetta er alvarlegt áfall fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.

Þetta snýst ekki bara um eina vöru eða einn geira heldur um grundvallarspurningu: Er Ísland raunverulega hluti af innri markaði eins og samningurinn á að tryggja, eða er verið að ýta okkur út fyrir tollmúrinn eftir hentisemi þegar hagsmunir ESB ríkja rekast á okkar hagsmuni?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Málið er af slíkri stærðargráðu að það hlýtur að vera hafið yfir innanlandsátök í íslenskri pólitík. Kristrún Frostadóttir verður að stíga fram, axla ábyrgð og kalla saman formenn allra flokka á Alþingi. Það er sameiginlegt markmið okkar allra að gæta hagsmuna Íslands. Við erum saman í þessu.

Stjórnvöld eiga ekki að bíða þegjandi eftir næsta samningi frá Brussel heldur standa upp og verja hagsmuni íslensks atvinnulífs af fullri festu. Við í Sjálfstæðisflokknum munum tala skýrt og viljum tryggja frjáls viðskipti, samkeppnishæft atvinnulíf og það að hagsmunir Íslands gangi alltaf framar plani ríkisstjórnarinnar um inngöngu í Evrópusambandið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: