- Advertisement -

Þá renna á mann tvær grímur

Alþingi: „Já, þetta er afar brýnt mál og ég held að við öll hér á þingi og annars staðar í samfélaginu styðjum markmið þessa frumvarps. En hvernig að þessu hefur verið staðið er gagnrýnivert. Það hefur komið mikið ákall frá sveitarfélögum landsins um að það vanti algjört kostnaðarmat á áhrifum þessarar lögfestingar,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir Sjálfstæðisflokki á Alþingi um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

„Við erum sem þjóð að gera gríðarlega vel í málefnum fatlaðs fólks og viljum halda því áfram, en þá þarf að sjá fyrir endann á hlutunum. Það eru sveitarfélögin sem bera ábyrgð á þjónustu við fatlaða frá árinu 2011 og þessum málaflokki hefur ekki fylgt nægt fjármagn. Fólk ber miklar væntingar til þess að með þessari lögfestingu muni biðlistar eftir húsnæði og öðru bara minnka og breytast og verða jafnvel að engu á örskömmum tíma. En það er óraunhæft, því miður. Við þurfum að horfast í augu við það því að annað kemur bara niður á þeim sem þjónustuna þurfa. Þannig að ég vona og vænti þess að á milli þessara umræðna þá verði tekið tillit til þessa endurskoðunarákvæðis sem sett er inn í breytingartillögu annars minni hluta. Ef ekki þá fara að renna á mann tvær grímur til hvers er af stað farið. Það ætti að vera mjög einfalt mál að taka tillit til þessa ákvæðis,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: