Stjórnmál: Guðmundur Árni Stefánsson margreyndir foringi krata í Hafnarfirði skrifaði:
Það er verk að vinna í Hafnarfirði. Við jafnaðarmenn stöndum styrkum fótum í bænum og finnum mikinn meðbyr og næsta skref er að skipa sigurstranglegan og öflugan framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Fyrirkomulag þess verkefnis verður ákveðið á félagsfundi síðar í vikunni. En markmiðin eru skýr: Að vinna góðan kosningasigur, taka við stjórn bæjarins af síþreyttum og magnþrota meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, sem hefur setið alltof lengi eða í heil 12 ár.
Viðfangsefnin eru um allt: húsnæðismálin og að tryggja gott og ódýrt byggingarland til framtíðar, skerpa þarf á stjórnsýslu bæjarins og tryggja hag bæjarbúa og atvinnulífs, treysta þarf innviði í grunn- og leikskólum, flýta þarf löngu brýnum vegabótum á Reykjanesbraut og tryggja þjónustu við eldri sem yngri Hafnfirðingar – svo fátt eitt sé talið. Það þarf að taka til hendinni. Jafnaðarmenn í Hafnarfirði er tilbúnir í verkin með öllum Hafnfirðingum.