Þessir hópar, fyrrum valdhafar sem þola ekki að hafa misst valdasprotann frá sér, hafa sótt að Flokki fólksins að undanförnu af hömlulausri heift einmitt því að flokkurinn og fulltrúar hans passa ekki þeirri staðalímynd.
Jón Már Torfason skrifaði þessa fínu grein:
„Einhverjir virðast ætla að gera sér mat úr ávarpi nýs mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundar Inga Kristinssonar, sem hann flutti á leiðtogafundi í menntamálum í morgun. Ræðan er óneitanlega á eilítið brotakenndri ensku og virðist einhverjum þykja það merki um að hann sé ekki embættinu vaxinn.
Slíkt er auðvitað ólýðræðislegur stéttahroki af verstu sort. Það á ekki að vera krafa að vera langskólagenginn til að gegna pólitískum embættum. Ráðherraembættið snýst um pólitíska forystu og ráðherrum til aðstoðar við framkvæmd pólitískrar sýnar sinnar er lítill her af langskólagengnum sérfræðingum sem ég efast ekki um að tali allir lýtalausa ensku.
Ákveðnir hópar samfélagsins virðast hafa vanist völdum og þess vegna líka vanist ákveðinni staðalímynd af því hvernig fólk sem fer með völd lítur út, talar og hegðar sér. Þessir hópar, fyrrum valdhafar sem þola ekki að hafa misst valdasprotann frá sér, hafa sótt að Flokki fólksins að undanförnu af hömlulausri heift einmitt því að flokkurinn og fulltrúar hans passa ekki þeirri staðalímynd.
Í ágætum æviágripum sem birtust á Vísi í morgun kemur fram að Guðmundur hefur unnið sem smiður, lögreglumaður og afgreiðslumaður, áður en hann varð öryrki eftir bílslys og við tók áralöng barátta við kerfið. Er það ekki gagnlegri og mannlegri reynsla en hjá mörgum öðrum sem hafa setið í ríkisstjórn? Og er það kannski ekki bara fegurðin við lýðræðið að maður með þennan bakgrunn geti náð kjöri og einmitt verið fulltrúi þeirra sem hafa ekki farið með völd; fulltrúi fólks sem hefur á einhvern hátt fallið milli skips og bryggju í kerfinu — einmitt það fólk sem hinn „hefðbundni“ ráðherra á erfitt með að sjá og skilja og einmitt það fólk sem helst þarf að hjálpa til að bæta kerfið.
Þannig það má vel vera að Guðmundur tali ekki fullkomna ensku og að aðrir ráðherrar Flokk fólksins séu ekki með þann bakgrunn sem fólk hefur vanist af ráðherrum. En það mannlega og ófullkomna er ekki veikleiki þeirra heldur styrkleiki.“
Greinin er fengin af Facebook síðu Jóns Torfa. Fyrirsögnin er Miðjunnar.