- Advertisement -

Þar sem heilsársútgerð og fiskvinnsla eru hryggjarstykkið í byggðafestunni

„Þarna er í rauninni, með þessari aðgerð, verið að taka í burtu heilsársstörf, leggja þau af fyrir sumarstörf.“

Ólafur Adolfsson.

Alþingi: Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi fyrir skömmu.

Frá Hólmavík.

„Í ljósi þess að á eftir munum við halda áfram að ræða frumvarp hæstvirts innviðaráðherra um breytingar á fiskveiðilöggjöfinni, oft nefnt strandveiðifrumvarpið, langar mig að mælast til þess að þingheimur skoði grein sem birtist nýlega á Vísi. Greinin er eftir Björk Ingvarsdóttur og Mikael Rafn Steingrímsson sem eru fyrirsvarsmenn útgerðarfyrirtækja og vinnslna, annars vegar á Drangsnesi og hins vegar í Hólmavík. Greinin er mjög upplýsandi um þá stöðu sem atvinnurekendur í þessum litlu byggðum horfa í.

Í frumvarpinu er verið að leggja til að fella niður línuívilnun, skel- og rækjubætur og nýta þær aflaheimildir til að auka strandveiðar. Ég vil í því sambandi vekja athygli á að markmið laga um stjórn fiskveiða er, eins og allir þekkja, að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Helsta ráðstöfun stjórnvalda til að efla byggð í landinu er að draga 5,3% af úthlutuðu aflamarki og endurráðstafa því til byggðarlaga í alvarlegum vanda í sjávarútvegi með svokölluðum byggðaaðgerðum. Þessar byggðaaðgerðir eru almennur og sértækur byggðakvóti, línuívilnun, skel- og rækjubætur, frístundaveiðar og strandveiðar.

Með þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpi ráðherra er verið að fækka byggðaaðgerðum úr sex í fjórar. Margar smærri útgerðir og fiskvinnslur um allt land treysta á eina eða fleiri af þessum byggðaaðgerðum til að stunda heilsársstarfsemi. Heilsársútgerð og fiskvinnsla eru hryggjarstykkið í byggðafestu í þessum brothættu sjávarbyggðum. Það liggur í augum uppi, frú forseti, að fólk mun mögulega koma til með að flytja sig og sínar fjölskyldur burt ef atvinna er eingöngu í boði yfir hluta ársins. Þarna er í rauninni, með þessari aðgerð, verið að taka í burtu heilsársstörf, leggja þau af fyrir sumarstörf.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: