- Advertisement -

Þessi mál eiga að vera þverpólitísk

Alþingi: Pawel Bartoszek, formaður utanríkisnenfndar Alþingis skifaði:

„Fyrir 9 árum, þegar ég datt af þingi sagði ég þetta: „Ég hef unun að því að leita sátta. Að fá mál sem virðist í algerum hnút, setjast niður með þingmönnum ólíkra flokka, sjá hvað hver vill, leita lausna, skýra hvað sé hægt og hvað ekki. Tilfinningin er svipuð og að aftengja sprengju. En eins og í því dæmi þá er það bara frétt þegar það mistekst. Ekki þegar það tekst.“

Það var nú reyndar smá frétt um það í dag þegar ný varnar- og öryggisstefna var samþykkt á þingi, með öllum greiddum atkvæðum, af þingmönnum allra flokka. Það er gleðileg niðurstaða fyrir formann utanríkismálanefndar. Þessi mál eiga að vera þverpólitísk.

Ég viðurkenni að ég lagði mig allan fram við að ná þessari lendingu. Mér þótti vænt um að formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hafi ákveðið að koma í tvígang í pontu Alþingis í dag til að þakka mér fyrir minn þátt í málinu. Ég er stoltur af þessu verki og stoltur af Alþingi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: