„Meirihluti þeirra er búa við heimilisleysi og húsnæðisóöryggi eru karlar.“
Jón Pétur Zimsen.
Alþingi:
Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talaði á Alþingi í gær. Hann talaði um karlmenn.
„Öll tengjumst við karlmönnum, eigum feður, afa, bræður, syni og frændur. Hluti karla í samfélaginu hefur verið algerlega afskiptur. Nýlegt dæmi er að aðeins tvær af 40 aðgerðum í kynjajafnrétti snúa að körlum, 5%. Í umsögnum stofnana og nefnda um áætlunina eru karlar fyrst og fremst notaðir í samanburði eða sýndir sem ofbeldismenn, ekki sem hópur með eigin réttindi eða áskoranir,“ sagði Jón Pétur.
Karlar eru yfirgnæfandi fjöldi fanga og fá stundum harðari dóma fyrir sömu brot en konur.
„Förum yfir nokkrar lykiltölur. Karlar taka mun oftar eigið líf, tvisvar til þrisvar sinnum oftar. Þeir eru langstærsti hluti banaslysa í umferðinni á Íslandi eða um 88%. Þeir bera meginþunga af banaslysum í vinnu á Norðurlöndunum, falla oftar frá skóla, hafa færri menntagráður og eru verr læsir en stúlkur. Meirihluti þeirra er búa við heimilisleysi og húsnæðisóöryggi eru karlar. Rannsóknir á Íslandi sýna meiri neyslu áfengis og fíkniefna hjá körlum en konum. Lögheimili barna eftir skilnað er mun oftar hjá móður en föður og sum börn búa við skerta daglega umgengni við feður sína, en þeir standa líklega oftast verst efnahagslega í samfélaginu, fráskildir feður. Karlar eru yfirgnæfandi fjöldi fanga og fá stundum harðari dóma fyrir sömu brot en konur. Piltar, 16–24 ára, eru 23% fleiri óvirkir einstaklingar í samfélaginu, þ.e. án vinnu og ekki í skóla. Karlmenn lifa að jafnaði þremur til fjórum árum styttra en konur. Hvers vegna duga embættisbréf og íslensk lög ekki til þess að jafnræðis sé gætt og málefni karla komist á dagskrá? Þetta er tölfræðin sem blasir við strákunum okkar. Þetta er jafnréttisparadísin Ísland.“