
Marinó G. Njálsson:
Ég vorkenni þingmönnum ekkert að sitja alla sumarmánuðina inni í þingsal, svo þeir geti tjáð sig eins og þeir vilja um hin ýmsu þjóðþrifamál. Það yrði algjörlega þeirra ákvörðun hve lengi Alþingi þyrfti að starfa.
Ef stjórnarandstaðan ætlar að tala í fjóra daga í fyrstu umræðu um hvert einasta stjórnarfrumvarp, þá mun árið ekki duga til að afgreiða mál ríkisstjórnarinnar. Ég vona því, að þetta gerist ekki mjög oft. Síðan á hún örugglega eftir að tala í 8 daga í annarri umræðu.
Svo vill til að ég spáði að þetta myndi gerast, þegar ljóst var að Sjálfstæðisflokkurinn yrði í stjórnarandstöðu. Það var í umræðum við Rauða borðið á Samstöðunni að ég nefndi að Sjálfstæðismenn myndu sækja excel-skjalið sem Birgir Ármannsson notaði til að skipuleggja málþóf Sjálfstæðismanna á kjörtímabilinu 2009 til 2013. Ég spáði því líka, að þeir myndu gefa hinum stjórnarandstöðuflokkunum aðgang að því.
Það þykir mikilvægur liður í framgangi lýðræðisins, að þingmenn fái að tjá sig óhindrað í ræðustól á Alþingi. Ekki ætla ég að mæla því mót. Ég legg hins vegar til, að teknar verði upp reglu fótboltans um viðbótartíma í leikjum til að mæta málþófi. Eins og þeir vita sem fylgjast með fótbolta, er tíma bætt við hvorn hálfleik í leikjum af ýmsum ástæðum, m.a. vegna vísvitandi tafa. Þetta má yfirfæra á störf Alþingis þannig, að í hvert sinn sem umræða um mál tefst og flytja þarf hana yfir á annan dag, þá lengist sá tími sem Alþingi kemur saman.
Löngu er síðan orðið tímabært að breyta þingsköpum.
Ég vorkenni þingmönnum ekkert að sitja alla sumarmánuðina inni í þingsal, svo þeir geti tjáð sig eins og þeir vilja um hin ýmsu þjóðþrifamál. Það yrði algjörlega þeirra ákvörðun hve lengi Alþingi þyrfti að starfa. Skrifstofa Alþingis þyrfti bara að gæta að því, að ráða fleira starfsfólk, svo launafólk gæti fengið sinn hvíldartíma og tekið sitt sumarfrí.
Á haustþingi leiði þetta til styttra jólafrís þingmanna, hvort heldur fyrir jól eða að þing kemur saman strax eftir áramót til að vinna upp tafir á störfum þess. Á vorþingi leiði þetta til þess að þing haldi störfum áfram inn í sumarið, þar til búið er að vinna upp tafadaga. Þessi regla verði sett inn í lög um þingsköp og hún verði ófrávíkjanleg.
Löngu er síðan orðið tímabært að breyta þingsköpum þannig, að ekki þurfi að endurflytja þingmál innan sama kjörtímabils, þó ekki takist að ljúka umræðu á vorþingi. Þurfi að breyta frumvarpi, þá er það einfaldlega gert í meðförum þingnefnar eða af frummælanda í annarri umræðu.
Kannski að svona regla breyti starfsháttum á Alþingi til hins betra. Mér hefur lengi fundist gjammið á þingfundum ekki vera löggjafarsamkundinni til sóma og frekar verið þingmönnum til minnkunnar. Er ég þá að líta yfir þingstörf síðustu 50 ára eða svo. Er það ósk mín, að þingheimur girði sig í brók og breyti háttum sínum.
Tek skýrt fram, að skoðun mín um þetta hefur ekkert með það að gera hvaða flokkar mynda meirihluta og hverjir eru í minnihluta. Þessi umræðuhefð er vanvirðing við kjósendur og ekki síður við skattgreiðendur sem sjá illa farið með skattpeningana. Bæði kjósendur og skattgreiðendur reikna með skilvirku Alþingi, en ekki einhverju vitleysingahæli, eins og maður hefur of oft á tilfinningunni að umræða í þingsal endurspegli.
Greinina birti Marinó fyrst á eigin Facebooksíðu. Greinin er birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar.