Til að mynda er undarlegt að 800–1.000 vörubílar af mat hafi ekki fengið dreifingu af hálfu Sameinuðu þjóðanna en það mun vera m.a. vegna þess að Hamas stelur öllu sem þarna kemur inn.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
„Varðandi UNRWA og Gaza þá held ég að það sé enginn ágreiningur meðal þingmanna eða fólks almennt um mikilvægi þess að styðja við fólk í neyð á Gaza-svæðinu. En ég held líka að íslenskir skattgreiðendur væru ekkert sérstaklega glaðir ef þeir kæmust að því að skattfé þeirra fari í að styðja við hryðjuverkasamtökin Hamas. Þess vegna er þetta eitthvað sem þarf að taka alvarlega,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þingræðu, og hélt svo áfram:
„Og talandi um Sameinuðu þjóðirnar þá þarf Ísland líka að beita sér gagnvart Sameinuðu þjóðunum í að gera meira í því að dreifa mat. Til að mynda er undarlegt að 800–1.000 vörubílar af mat hafi ekki fengið dreifingu af hálfu Sameinuðu þjóðanna en það mun vera m.a. vegna þess að Hamas stelur öllu sem þarna kemur inn. Þegar þetta mál er nálgast þá þarf að huga að því að þær ráðstafanir sem við gripum til nýtist fólkinu sem þarf á aðstoðinni að halda.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur utanríkisráðherra:
Framtíð Palestínu verður líka að vera með fólki.
„Við þingmenn, þvert á alla flokka, samþykktum þingsályktunartillögu á síðasta þingi. Hún er líka ákveðið leiðarljós fyrir okkur. Við samþykktum hana öll hér. Það er alveg ljóst að Ísland fordæmir framgöngu Hamas. Það er alveg ljóst að við tökum undir með forystufólki í Palestínu að Hamas eigi ekki að koma að uppbyggingu stjórnvalda í Palestínu. Mér leiðist alltaf þessar krækjur, að reyna að gera allan stuðning sem við erum að reyna að koma til fólksins á Gaza tortryggilegan og segja: Þetta er allt saman Hamas-liðar. Við fordæmum framgöngu Hamas en við getum ekki látið ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, og sérstaklega Gaza-svæðinu, vera eins og það er. Það er bara ekki hægt. Við erum ekki bara búin að styrkja UNRWA á svæðinu heldur fleiri samtök eins og ég gat um áðan og það eru fleiri leiðir sem Ísland hefur notað til þess að koma til aðstoðar á svæðinu og mér finnst vont þegar verið er að dylgja um að við séum að styrkja Hamas. Þvert á móti höfum við sagt það skýrt að það eigi að leysa úr haldi alla gísla tafarlaust, skilyrðislaust, og framtíðin í Palestínu er ekki með Hamas. En framtíð Palestínu verður líka að vera með fólki. Eins og aðstæður eru núna er Ísraelsher að koma í veg fyrir að það verði fólk sem geti lifað á Gaza, ekki nema bara að það sé ætlunin að það sé þeirra fólk. Ég er ekki sammála því af því að ég styð eindregið tveggja ríkja lausn og við erum að vinna að því.“
Hér greip Sigmundur Davíð inní:
„Ráðherra svarar ekki spurningunni.“
„Ég er að svara spurningunni,“ sagði Þorgerður Katrín. Sigmundur Davíð var ekki hættur og kallaði: „Nei.“
„Þá verður hann bara einfaldlega að orða…“
„Virðulegi forseti. Það verður að brýna fyrir háttvirtum þingmönnum að koma með skýrar spurningar en ekki bara einhverjar dylgjur,“ sagði Þorgerður Katrín að endingu.