- Advertisement -

Tímalína hörmulegra limlestinga og kvalafulls dauðastríðs háþróaðrar lífveru

Ole Antin Bieltvedt skrifar:

Þann 7. september veiddi Hvalur 8 fyrstu langreyðina á þessari vertíð. Nokkuð hefur verið fjallað um þessar veiðar, en MAST setti tímabundið bann á veiðar skipsins, eftir þessar veiðar, vegna ótrúlegra glapa, mistaka og alvarlegra brota á lögum og reglum.

MAST taldi megin brotið það, að allt of langur tími hefði liðið milli 1. skots – sem bara særði, þó illilega væri, boraðist inn í höfuð, þar sem bannað er að skjóta, og sprakk þar, án þessa að drepa – og skots nr. 2, sem ekki var framkvæmt fyrr en 28 mínútum eftir skot nr. 1. Dýrið kvadist auðvitað heiftarlega allan þennan tíma, í hálfa klukkustund, og voru lög um skjóta og sársaukalausa aflífun dýra heiftarlega brotin með þessum hætti.

Reyndar drapst dýrið heldur ekki strax, eftir skot nr. 2, og þurfti blessað dýrið að berjast um, í sínu heiftarlega dauðastríði, enn í minnst 6 mínútur, án þessa að skytta hefði nokkra tilburði til að stytta því kvölina með 3. skotinu. Skammar- og hörmungarsaga.

…spilið hefði bara bilað…

Í Kastljósi 19. september fullyrti Kristján Loftsson, við góðar undirtektir Bergsteins Sigurðsson, fréttamanns, að þetta hefði ekki verið neitt mál, spilið hefði bara bilað, sem alltaf gæti gerzt og væri bara eðilegur hlutur – eins og hann bæri enga ábyrgð á tæknibúnaði skipsins eða því, að hann væri í traustu og örugglega nothæfu lagi – og snéri Kristján dæminu upp í það, að starfsmaður Fiskistofu, sem myndaði veiðarnar, hefði blekkt – væntanlega MAST og aðra – með því að beita súmi á upptökuna, þannig, að dýrið hefði virtzt nær, en það var, og í góðu skorfæri, sem Kristján fullyrti, að ekki hefði verið.

Gaf Kristján til kynna, að dýrið hefði verið allt of langt í burtu, í 100-150m fjarlægð, allan þann tíma, sem skytta beið eftir því að skjóta skoti nr. 2. Ekki hefði verið hægt að hífa dýrið inn vegna bilunarinnar í spili. Það hefði verið megin ástæðan fyrir þessari löngu töf, milli skots 1 og skots 2, og þess hörmulega dauðastríðs, sem dýrið var að ganga í gegnum.

Jafnvel og þessar lýsingar og tal Kristjáns fóru í fréttamann, sem virtist taka þessu öllu eins og nýju neti, brosti og jánkaði, fóru þær illa í undirritaðan. Falaðist hann því eftir frumgögnum málsins frá MAST, á grundvelli upplýsingalaga, og varð MAST góðfúslegast við þeirri beiðni.

Veldur það undruð, að fréttamaður skuli ekki hafa falast eftir gögnunum.

Eitt þeirra gagna, sem MAST lagði okkur í Jarðarvinum til, er svokölluð „Tímalína, myndband af veiðum Hval 8, langreyður 1“. Innihald þessarar upptöku er svona:

Mínútur frá 1. skoti:

3:30           Dýr er komið aftur með skipi bakborðsmegin

4:27           Púðurhylki komið úr skutulbyssu

5:50                    Sést greinilega að lína byrjar að lyftast upp, sem bendir til að dýr sé að kafa/synda út frá bát

6:25                    Hvalur sést í nokkurri fjarlægð frá skipi blása, synda og kafa endurtekið í eðlilegri líkamsstöðu. Fjarlægist

7:03                    Kallað „byrjið að hífa“ endurtekið 3x til 7:40

7:51          Spurt „hvað er að?“

8:13                    Sést að þrír eða fjórir menn eru að vinna við að endurhlaða  skutulbyssu

8:33                    Hamar sóttur. Kallað til þeirra „Er þetta helvítis batterí bilað?“. Svar „Nei, nei“. „Það er ekkert batterí“

9:00                    „Strákar við höfum ekki þennan tíma, hvað er í gangi?“

9:15                    Nýtt púðurhylki sett í skutulbyssu? Skotmaður kallar aftur í skip „Byrjið að hífa“. Svarað „Bara rólegir við erum að vinna í þessu“. Skotmaður slær hnefa í handriðið

11:17                  Teipað utan um kveikjuþráð

11:37                  Skutulbyssa aftur hlaðin og tilbúin, beint fram að sjó (8 mín og 7 sek eftir fyrsta skot)

13:06         Hvalur syndir, kafar og blæs reglulega nær skipi stjórnborðsmegin. Sést hvar 1. skutull situr í haus, utan leyfðs marksvæðis, rétt neðan við blástursop

15:00         Sést að búið er að draga dýrið nálægt skipi. Sést velta sér í kafi

15:51         Búið að draga dýrið alveg að skipi framan við stjórnborðs-meginn (spil enn í lagi, margfaldur tími hefði verið til staðar til að endurskjóta). Dýrið veltir sér og berst kröftuglega um. Skipverji grípur um höfuð sér

16:06         Dýrið slær sporði kröftuglega í skipið. Línur fljúga upp í loft

16:35                  Litlar spiktægjur úr dýrinu sjást fljóta í sjónum. Dýrið kafar undir skip

16:40         Kallað „Stopp“. Spil hægra megin á þili virðist bilað. Rýkur úr því. Járn slæst til

16:59         Skotmaður horfir aftur á þilfar

17:18         „Slakaðu, slakaðu, bakkaðu út“

17:36         Skotmaður horfir stöðugt aftur á þilfar, ekki að sjá að hann fylgist með dýri

17:57         Skotmaður fer frá skutulbyssu og kíkir fyrir borð stjórnborðs-megin og horfir svo aftur á þilfar og á í samskiptum við skipverja, kíkir fyrir borð til skiptis sitt hvoru megin og kallar „Hart í bak“

18:10         „Spilið er örugglega farið“

18:30         Dýr birtist bakborðsmegin, heldur réttri stöðu, syndir og blæs. Ekki langt frá skipi

18:56         Kallað „X við verðum að binda þau, annars ferð spilið“

19:01         Dýrið syndir og blæs bakborðsmegin framarlega í átt að stefni

19:12         „Hlífin farin“

19:15         „Það verður að binda hinu megin líka“

19:24         Dýrið rétt framan við skip bakborðsmegin, syndir, kafar, blæs. „Náið þið að hífa?“. „Nei“

19:43         Dýrið ætti endurtekið að hafa verið í góðu skotfæri. Syndir svo lengra út

20:05         Skotmaður horfir aftur á þilfar, en ekki á dýrið

20:19         Einhver kallar „Línan verður ónýt, ef við gerum þetta“

21:28         Dýrið driftar fyrir framan skotmann í stuttu skotfæri. Kafar, syndir, blæs. Skotmaður horfir aftur á þilfar og horfir hvork á né miðar á dýrið

22:15         Einhverjar viðgerðir í gangi (vél). Dýrið í nálægð framan við skip, syndir, kafar, blæs. Skotmaður horfir stöðugt aftur á þilfar, en lítur öðru hvoru á dýrið. Þó ekki til að miða á það

25:33         Skotmaður fórnar höndum

26:52         Dýrið kemur ítrekað upp og blæs þvert fyrir framan skipið, að því er virðist í mjög góðu skotfæri. Skotmaður horfir að mestu aftur á þilfar

30:03         Dýrið nálgast skipið stjórnborðamegin framan til, syndir, kafar, blæs. Skotmaður horfir á dýrið, en tekur ekkert mið

30:27         Dýrið komið fáum metrum frá skipi, syndir fram og til baka fyrir framan skip og til hliðar. Skotmaður byrjar loks að fylgja dýrinu með skutulbyssu. Virðist endurtekið í góðu færi

32:09         Skot 2, 28 mín og 39 sek eftir 1. skot. Dýr kafar/sekkur

32:27         Dýrið kemur upp aftur, heldur stöðu og virðist synda áfram. Heyrist blása

32:51         Púðurhylki tekið úr skutulbyssu

33:19         Dýrið kemur upp aftur, sést ekki skýrt blása, en loft virðist koma úr blástursopi, þegar það fer undir yfrirborð. Slær til sporði

33:49         Nýtt púðurhylki sett í skutulbyssu

33:55         Dýrið enn að synda í réttri stöðu, slær til sporði

35:02         Ekki búið að hlaða skutulbyssu aftur. Dýrið sést enn synda í réttri stöðu, blástur ekki eins greinilegur, virðist draga af dýri

35:10         Slær til sporði, blóð flæðir í sjó

35:20         Skutulbyssa enn ekki hlaðin aftur

35:25         Dýrið heldur enn stöðu og beitir sundhreyfingum, en er orðið hægara, loft virðist streyma upp frá skotstað 2, slær til sporði, er mjög nálægt skipi

36:41         Ekki að sjá að skutull sé gerður klár fyrir nýtt skot, skotmaður að gramsa í dóti. Stendur ekki við byssu

36:57         Dýrið slæt til sporði

37:11         Tveir aðstoðarmenn koma með hluti fyrir skutulbyssu

37:34         Skutulbyssa enn ekki tilbúin, dýrið syndir enn

37:42         Sundhreyfingar breytast í nokkur stutt „lyft“ að framan. Enn þrír menn við að hlaða skutulbyssu

37:52         Trjóna dýrsins kemur nú upp úr sjónum og dýrið fer meira í lóðrétta stöðu og sekkur

38:12         Skutulbyssa virðist enn ekki tilbúin fyrir endurskot, rúmum 6 mín eftir 2. skot

38:36         Trjóna kemur upp og dýrið virðist líflítið/líflaust, hálflóðrétt í sjó, meira á baki. Hreyfingar sjást ekki. TTD 35 mín

38:58         Dýrið tekur að sökkva.

Kristján Loftsson beitti rangfærslum og blekkingum…

Önnur eins vinnubrögð, aðrar eins aðfarir, annað eins dauðastríð, segi ég bara. Hefði ég ráðið hvalveiðimálum hér, hefði ég aldrei leyft Hval 8, skipi með þessum búnaði og áhöfn, nokkurn tíma að veiða hval aftur.

Hvað hefðu menn hér sagt, ef Afríkumenn hefðu murkað líftóruna úr fíl með svipuðum hörmungar hætti!? Kvalið hann til dauða á 40 mínutum.

Fílar og langreyðar eru sambærileg dýr, spendýr með háþróað vit, skyn og tilfinningar, dýr, sem kenna hvert öðru og læra af hverju öðru, dýr sem lifa saman í þróuðu og skipulegu fjölskyldu- og félagssamfélagi, þar sem væntumþykja og elska ráða, dýr, sem gleðjast, sakna og hryggjast, eins og við, dýr, sem finna fyrir áverka og sársauka, eins og við. Eini munurinn er sá, að annað dýrið er landdýr, hitt sjávardýr.

Þessi tímalína eftirlitsmanns, hér að ofan, sýnir líka, að Kristján Loftsson beitti rangfærslum og blekkingum, grófum ósannindum, þegar hann reyndi að útskýra og réttlæta þessar hörmungarveiðar í Kastljósi. Ótrúlegt, að slíkur óheilindamaður skuli vaða hér uppi.

Það var margsinnis hægt að skjóta dýrið skoti nr. 2, löngu áður en 32 mínútum eftir fyrsta skot. Við bætist, að algjör óreiða virðist hafa ríkt á skipinu, bæði hvað varðar búnað og vinnubrögð skyttu og áhafnar.

Skv. formlegum upplýsingum, skuldbindingu, Hvals hf til MAST, telja þeir sig geta hlaðið skutulbyssu á rúmum 2 mínútum. Þetta tryggi skjóta aflífun skotins og særðs dýrs. Þetta hefur hins vegar aldrei staðizt í reynd, og er hrein blekking.  Um hvað á orðið „skrælingjaháttur“ að gilda, ef ekki þetta? Í boði ríkisstjórnarinnar!       


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: