Rússland:
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar:
„Barnamorðinginn og barnaræninginn Pútín er orðin lúinn og kominn með hrukkur, enda orðinn 74 ára gamall. Er svona að komast á „tíma“ miðað við flesta leiðtoga þarna fyrir austan, að Gorba undanskildum. Blóðbaðið sem Pútín setti af stað í Evrópu árið 2022 verður stærsti og mesti skammarbletturinn á ferli hans (af mörgum öðrum, m.a. morðum á stjórnarandstæðingum).
Um 40% af þjóðarframleiðslu Rússa fara í stríðið, þó hann njóti stuðning Kínverja og fleiri skúrkaþjóða. Hundruðum þúsunda rússneskra karlmanna hefur verið fórnað á altari Pútíns. Nú förum við inn í fimmta stríðsveturinn og enn og aftur mun VP reyna að murka lífið úr Úkraínumönnum með kulda og vosbúð. En þeir munu ekki gefast upp. Til þess þarf að útmá alla úkraínsku þjóðina og það mun ekki takast, nema með vopnum sem við viljum ekki minnast á. En, sem hann hefur minnst á. „Krimmi“ er orðið sem passar þessum vonda leiðtoga.“