„Það er engin ástæða til þess að boða eitthvert svartnætti – það er bjart framundan.“
Sigurjón Þórðarson.
Facebook: Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, skrifaði:
„Það er óneitanlega undarlegt að hlusta á þingmenn stjórnarandstöðunnar í fyrirspurnartíma hlakka yfir ýmsum áföllum í efnahagslífinu m.a. tímabundinni stöðvun Norðuráls, rekstrarstöðvunina að Bakka, háum vöxtum og útliti fyrir minni makrílveiði.
Í sömu andrá og heimtað er endurskoðun á skattastefnu með það fyrir augum að lækka skatta er kallað eftir auknum ríkisútgjöldum.
Uppfærð þjóðhagsspá þar sem farið er yfir framangreinda þætti gefur ekki til kynna að einhverjar hörmungar séu á næsta leyti.
Það eru gríðarleg tækifæri í augsýn á Íslandi m.a. að auka fullvinnslu fiskafurða en það má gera það með hvötum jafnt sem úflutningsálagi á óunninn fisk, fara í aukið eldi á landi sem sjó t.d. Eyjafirði, setja kraft í vinnslu á þara í Fjallabyggð. Það blasir við mér sem líffræðingi að það sé skynsamlegt að auka verulega veiðar á fiskistofnum m. a. þorski þar sem vöxtur einstaklinga er hægur.
Það er engin ástæða til þess að boða eitthvert svartnætti – það er bjart framundan.“