- Advertisement -

Sauðkræklingar vilja fá varðskip

Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar, og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hafa ræðst við um hvort eitt varðskipa Landhelgisgæslunnar fái heimahöfn á Sauðárkróki. „…slíku fylgja bæði störf og umsvif,“ segir Stefán Vagn í grein sem hann skrifar í Feyki.

„Þessar þreifingar hafa þegar skilað því að varðskipið Ægir sigldi fyrir nokkru í höfnina til að máta sig við aðstæður hér. Tókst afar vel til og voru skipverjar mjög ánægðir með alla umgjörð og móttökur okkar Skagfirðinga. Það er trú mín að jákvæð niðurstaða fáist úr viðræðunum og þeim verði lokið innan skamms með þeim hætti að Skagfirðingar fái reglulega notið þess að sjá varðskip gæslunnar í heimahöfn á Sauðárkróki.“

Stefán Vagn segir að á liðnum misserum hafi umræða um nauðsyn þess að geta brugðist hratt við í leit og björgun á Norðurhöfum aukist mjög vegna fyrirsjáanlegrar aukinnar skipaumferðar í tengslum við opnun nýrra siglingaleiða heimsálfa á milli. „Landhelgisgæsla Íslands hefur ekki farið varhluta af þeirri umræðu en gæslan hefur það hlutverk að skipuleggja og framkvæma löggæslu og eftirlit með landhelgi Íslands, efnahags- og fiskveiðilögsögu Íslands, mengunarvörnum og siglingum á íslensku hafsvæði í samræmi við lög þar um, ásamt því að sinna leit og björgun á hafinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan hefur m.a. sinnt eftirliti á Norðurlandi og haft eitt varðskipa sinna í heimahöfn þar um hríð.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: