Umræðan/Kratinn: „Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður var einnig á meðal þeirra sem tóku til máls um samgönguáætlun, en hann benti á að það væri ekki alveg saman hljóð og mynd í málflutningi Miðflokksmanna, sem gagnrýnt höfðu að það ætti að innheimta gjöld fyrir akstur um ný umferðarmannvirki eins og Sundabraut og fleiri,“ segir í vefriti Samfylkingar, Kratanum.
Þetta kölluðu Miðflokksmennirnir Þorgrímur Sigmundsson og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir „skattahækkanir“. Guðmundur Ari benti á að þessir þingmenn væru á meðal flutningsmanna í lagafrumvarpi frá stjórnarandstöðunni sem snýst um að stofna innviðafélagið Þjóðbraut.
„Þar er gengið talsvert lengra í innheimtu veggjalda heldur en gert er í þessari samgönguáætlun og hreinlega kallað eftir því að farið verði að innheimta veggjöld í öllum núverandi jarðgöngum á Íslandi,“ benti Guðmundur Ari á.