- Advertisement -

Verðum að halda í okkar friðarrödd

Frá Íslandsheimsókn Mark Rutte.

ruv.is Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir heimsókn framkvæmdastjóra NATO hingað til lands vera áminningu fyrir Íslandi um að halda í sína sjálfstæðu friðarrödd. Hún gagnrýnir nýja stefnu í varnar- og öryggismálum harðlega. Þetta segir á vef Ríkisútvarpsins.

Stuðningur við veru Íslands í NATO mælist mikill, rúmlega 71%, en tæplega 12% landsmanna eru henni andvígir.

Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, fylgdist með heimsókninni. „Mér finnst þetta fyrst og fremst vera áminning á viðsjárverðum tímum um að við verðum að halda í okkar sjálfstæðu friðarrödd,“ segir hún.

Verið sé að breyta grunnstefnu Íslands með nýrri stefnu í varnar- og öryggismálum sem er til umræðu á þingi, „frá þjóðaröryggisstefnunni sem leggur að meginhluta áherslu á friðsamlegar lausnir yfir í ákveðinn grunntón og undirtón sem snýst um vígvæðingu, hernaðarvæðingu, aukna áherslu á hernaðarútgjöld og þjónar þá fyrst og fremst hernaðarlegum hagsmunum stórveldanna.“

Svandís segir að ekki hafi verið nægileg umræða um þessi kaflaskil í samfélaginu og minna fari fyrir pólitísku viðnámi í þessum málum á Alþingi. „Tillagan sem ráðherrann leggur fram gerir ráð fyrir stóraukinni þátttöku Íslands í hernaðaruppbyggingu NATO, víðtækum skuldbindingum gagnvart Bandaríkjunum og kostnaðarsömum fjárfestingum í hernaðarlegum innviðum innanlands þar sem Alþingi er með tillögunni beðið um að opna tékka fyrir aukinni vígvæðingu til framtíðar.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

58% kjósenda VG eru hlynnt veru Íslands í NATO.

Athygli vakti í könnun Gallups í vor að 58% kjósenda VG eru hlynnt veru Íslands í NATO og einungis 30% á móti. „Við höfum verið með það sem hluta af okkar grunnstefnu að vilja standa utan hernaðarbandalaga, vilja tala fyrir friðsamlegum lausnum og vera friðarsinnar,“ segir Svandís.

„Um leið er okkur það algjörlega ljóst að í mjög breytilegum heimi eins og við erum að horfa upp á í dag, og þá er ég ekki bara að tala um Atlantshafsbandalagið heldur líka um Evrópusambandið, um alþjóðasamstarf af mörgu tagi, um loftslagsógnina, um flutninga á fólki milli heimshluta sem eru af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð áður, þetta kallar á að fólk og flokkar endurmeti og endurskoði sína nálgun á alþjóðamál. Við gerðum það á flokksráðsfundi núna í lok ágúst. Þá vorum við með áherslu á þessi mál,“ bætir hún við.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: