- Advertisement -

Verðum að nota Reykjavíkurflugvöll

„Vissulega er ákveðin hljóðmengun þaðan en það er mjög mikilvægt að við nýtum alla flugvelli landsins og það er líka mjög mikilvægt að huga að almannaflugi og sjúkraflugi í landinu.“

Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra.

„…mig langar að koma inn á sem snýr að því hvernig við gerðum ráð fyrir að nýta varaflugvallargjaldið sem byrjað var að rukka inn 1. nóvember 2023 og búið að rukka núna í tæp tvö ár. Þetta er öðru hvorum megin við 1.500 milljónir sem koma á ári. Það var skýrt í þeirri skýrslu, og hvernig þetta fór í gegnum þingið og var samþykkt hér í þinginu, hvernig ætti að fara með þessa fjármuni,“ sagði Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokki.

„Þó að við séum í fjárlögum ekki að ræða um markaða tekjustofna þá var algerlega skýrt þarna að þetta átti að fara í fjárfestingar á þeim alþjóðaflugvöllum fyrir utan Keflavík sem eru í alþjóðaflugvallarkerfi landsins; Egilsstaðaflugvöll, Akureyrarflugvöll og Reykjavíkurflugvöll. Þetta er skýrt. Þannig að nú er lykilatriði að þetta fjármagn, þessar ca. 1.500 milljónir, öðru hvorum megin við um 1,5 milljarð, skili sér í gegnum samgönguáætlun til þeirra framkvæmda eins og ætlað var,“ sagði Njáll Trausti

„Ég tel að þetta sé rétt skilið hjá háttvirtum þingmanni að varaflugvallargjald er hugsað til viðbótar við þjónustusamninginn en ég tel að það sé mjög mikilvægt að við hugum líka að öðrum flugvöllum sem flogið er til. Að sjálfsögðu þarf að gera það bæði út af sjúkraflugi og svo líka út af innanlandsfluginu og þá vonandi getum við eflt innanlandsflugið. Vissulega verðum við núna sennilega að fara að styrkja flugið til Ísafjarðar. Það verður boðið út á næsta ári, eða mjög fljótlega, svo að við tryggjum það áfram og við getum kannski reynt að horfa á einhver tækifæri þar, hvort það myndi efla samgöngur til annarra staða í leiðinni,“ sagði Eyjólfur Ármansson innviðaráðhera.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vissulega verðum við núna sennilega að fara að styrkja flugið til Ísafjarðar.

Síðar sagði hann: „Ég tel þetta varaflugvallargjald sé mjög mikilvægt. Það er mikilvæg viðbót til að styrkja flugvallakerfi landsins og ég tel að það sé mikilvægt fjármagn sem þar er komið. Vonandi tekst okkur að byggja upp Egilsstaðaflugvöll með miklum sóma en það mun kosta háar fjárhæðir eins og kom fram hjá háttvirtum þingmanni, 15–20 milljarða. Þá er mikilvægt að flugvöllurinn verði nýttur sem allra mest í millilandaflugi og bara sem allra mest. Sama á við aðra flugvelli í landinu og Reykjavíkurflugvöll þar á meðal. Við verðum að nota hann. Vissulega er ákveðin hljóðmengun þaðan en það er mjög mikilvægt að við nýtum alla flugvelli landsins og það er líka mjög mikilvægt að huga að almannaflugi og sjúkraflugi í landinu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: