- Advertisement -

Verður rukkað á ný Hvalfjarðargöngum?

Það má hins vegar veðsetja eign sem er ekki með gjaldtöku og tekjur, alveg eins og einstaklingar veðsetja húsnæði sitt jafnvel þótt þeir leigi það ekki út.

Eyjólfur Ármannsson ráðherra flokki fólksins.

Alþingi: Ólafur Adólfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Eyjólf Ármannsson samgönguráðherra:

„Mig langar síðan til að forvitnast um það hjá hæstvirtan ráðherra hvort hann hafi uppi áform um að hefja að nýju gjaldtöku í þeim göngum sem munu verða inni í hinu svokallaða innviðafélagi. Vil ég þar nefna göng eins og Hvalfjarðargöng og jafnvel göngin á Vestfjörðum. Hvaða áætlanir hefur hæstv. ráðherra varðandi það félag og af hverju er ekki farið að sýna betur á spilin varðandi innviðafélagið en raun ber vitni?“

Eyjólfur svaraði:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Varðandi gjaldtöku á standandi mannvirkjum núna, t.d. í Hvalfjarðargöngum, eru engin áform á borði ríkisstjórnarinnar um gjaldtöku á standandi mannvirkjum, þar með talið Hvalfjarðargöngum. Það er allt önnur umræða. Og þó svo að við gerum ráð fyrir að Ölfusárbrú fari inn í innviðafélag ásamt Vaðlaheiðargöngum og Hvalfjarðargöngum þá þýðir það ekki að hafin verði gjaldtaka. Vissulega eru Vaðlaheiðargöng tekjuberandi, þar í gegn er rukkað gjald en ekki af Hvalfjarðargöngum. Að þetta sé að fara í innviðafélag felur ekki sjálfkrafa í sér að farið verði í gjaldtöku. Það má hins vegar veðsetja eign sem er ekki með gjaldtöku og tekjur, alveg eins og einstaklingar veðsetja húsnæði sitt jafnvel þótt þeir leigi það ekki út. Það eru engin áform um það. Það er allt önnur umræða en sú sem varðar innviðafélag og samgönguáætlun.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: