Evrópa hefur staðið í skjóli Bandaríkjanna í áratugi. Hún er háð orkuinnflutningi, varnarlítil og langt á eftir í tækniþróun.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
Umræðan/Facebook: Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari skrifaði:
Ég er ekki á „Hans Rosling“ vagninum í dag. Mér finnst við vera að sigla inn í hættulega tíma.
Við höfum lengi treyst á að Bandaríkin standi vörð um lýðræði og alþjóðalög. Reynslan sýnir þó að eigin hagsmunir þeirra hafa oftar en ekki ráðið för, frá Víetnam til Íraks og nú Venesúela. Við Vesturlandabúar höfum litið fram hjá þessu, enda hefur þetta kerfi, með Bandaríkin í leiðandi hlutverki, þjónað okkur vel og tryggt okkur sæti í sigurliðinu. Nú er staðan önnur.
Forystuhlutverk Bandaríkjanna er dregið í efa og, eins og nýleg grein í The Economist sýnir skýrt, eru þau sífellt opnari fyrir því að beita valdi. Evrópa hefur staðið í skjóli Bandaríkjanna í áratugi. Hún er háð orkuinnflutningi, varnarlítil og langt á eftir í tækniþróun.
Í þessari breyttu heimsmynd standa smáríki á borð við Ísland afar höllum fæti. Við eigum hvorki að fylgja stórveldum í blindni né leita skjóls hjá einræðisríkjum. Okkar leið verður að vera skýr: að verja alþjóðalög, lýðræðisleg gildi og reglur sem halda valdi stórvelda í skefjum. Það er eina raunverulega öryggi smáríkja eins og Íslands.
Ég ætla samt ekki að fara að tala um skjánotkun og algóriðma í dag. Bíð með það þangað til næst.