- Advertisement -

Við höldum áfram að berjast fyrir hagsmunum Íslands

Stjórnmál: Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:

Ákvörðun Evrópusambandsins um að undanskilja ekki Ísland og Noreg frá verndartollum á kísiljárn var mikil vonbrigði. Að okkar mati samræmist hún ekki EES-samningnum þó að útfærslan á þessum aðgerðum taki mið af hagsmunum okkar – sem er ákveðinn varnarsigur eins og forstjóri Elkem hefur sagt.

Við höldum áfram að berjast fyrir hagsmunum Íslands í málinu. Og ég vil þakka öllum sem hafa lagt okkur lið í hagsmunagæslunni undir traustri forystu utanríkisráðherra.

Það er mikilvægt fyrir okkur sem erum í forsvari í stjórnmálum að senda rétt skilaboð til fólksins í landinu og atvinnulífsins. Að tala af ábyrgð. Og standa vörð um EES-samninginn sem er og verður áfram kjölfestusamningur í efnahagsstefnu Íslands.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég ræddi í morgun í síma við Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB. Ég kom skýrt til skila óánægju okkar með þessa niðurstöðu. Og að hún væri ekki í takti við það sem við ætti að búast í okkar samskiptum.

Von der Leyen staðfesti við mig að aðgerðirnar væru sértækt tilvik og ekki fordæmisgefandi fyrir aðrar ákvarðanir. Hún sagði líka skýrt að þessi ákvörðun snerist ekki um EES-samninginn. Ísland getur áfram reitt sig á aðgengi að innri markaði ESB og því fjárfestingaumhverfi sem samningnum fylgir. Þrátt fyrir þetta hliðarspor þá stendur EES-samningurinn sterkur. Það er mikilvægt að fá það staðfest með þessum hætti.

Nú er ég á leiðinni norður. Ég tek þátt í ráðstefnu á Húsavík um framtíðina á Bakka. Og í kvöld verð ég á Kópaskeri þar sem við Logi Einarsson ætlum að eiga opið samtal við heimamenn um daglega lífið. Hlakka til. Áfram gakk.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: