- Advertisement -

Viðbrögð við tölvupósti Sigmundar Erni

Alþingi 17. desember: Sigmundur Ernir Rúnarsson Samfylkingu sendi óvart tölvupóst óvart á nokkra þingmenn, póst sem átti bara að fara á mann utan þingsins. Úr varð nokkur umræða á þinginu. Skoðum aðeins:

Meirihlutinn er vonandi að vakna

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki: „Hér hefur verið til umræðu kílómetragjaldið. Við fengum nú fyrr í dag enn eina sláandi ábendingu þess efnis hversu flókið kerfið mun vera. Í ljósi þess hversu flókið kerfið í kringum kílómetragjöld á rafmagnsbifreiðar er — kerfið er ekki einu sinni tilbúið hjá Skattinum. En það sem var sérstaklega skrýtið er að loksins — af því ég er nýbúin að lýsa því yfir að meirilutinn hlusti ekki og sjái ekki — ákvað háttvirtur þingmaður meirihlutans að hlusta. Við fengum hér póst frá þessum háttvirta þingmanni þar sem hann segir orðrétt að ábendingin sé móttekin og að viðkomandi muni krefjast þess að málið verði endurmetið, þar á meðal íþyngjandi útfærslur. Þetta kemur frá þingmanni meiri hlutans. Því bið ég forseta að hlutast til um það að hér verði fundur í efnahags- og viðskiptanefnd því að meirihlutinn er vonandi að vakna.“

Gefa væntingar um að það eigi að endurskoða málið

Vilhjálmur Árnason Sjalfstæðisflokki: „Ég tek undir með háttvirtum þingmanni Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Hér er komin á dagskrá 3. umræða um kílómetragjaldið sem hefur legið fyrir allan tímann að sé mjög flókið í framkvæmd, fresturinn sé mjög stuttur og þetta sé mjög erfitt í framkvæmd. Og þegar háttvirtir stjórnarþingmenn eru farnir að lýsa því yfir við hagaðila úti í bæ og gefa væntingar um að það eigi að endurskoða málið, endurskoða íþyngjandi útfærslu málsins, þegar það er orðið staðan, þá hlýtur virðuleg efnahags- og viðskiptanefnd að þurfa að koma saman áður en 3. umræða klárast. Ef stjórnarþingmenn eru farnir að lýsa því yfir að það eigi að endurskoða málið hlýtur það að gerast áður en umræðan um málið klárast, virðulegur forseti. Ég vil benda á það að þetta mál er hér enn á dagskrá dagsins, þó að það hafi verið sett smá pása þá er málið enn þá á dagskrá þannig að það hlýtur að þurfa að fara fram einhver endurskoðun áður en umræðan klárast, virðulegi forseti.“

Verða að draga saman seglin

Karl Gauti Hjaltason Miðflokki: „Það eru reyndar afskaplega jákvæðar fréttir ef þingmenn stjórnarmeirihlutans hafa gert sér grein fyrir þessu með því að lesa pósta sem þeir fá, m.a. þennan umrædda póst, frá atvinnurekendum sem þurfa eftir lýsingum að dæma, og mörgum lýsingum sem ég hef fengið, að sinna afskaplega flóknum útreikningum og skilum til hins opinbera til að að geta greitt þetta kílómetragjald. Þetta veldur miklum kostnaði og mikilli mannaflaþörf, svo mikilli að þessi fyrirtæki hyggjast jafnvel, og verða jafnvel, að draga saman seglin að einhverju leyti vegna kostnaðar og umfangs þessa nýja skatts. Það er auðvitað vel ef þingmenn stjórnarliðsins hafa uppgötvað þetta líka. Það er auðvitað lágmark, herra forseti, að umræðu um þetta mál, sem er enn í gangi hér á dagskránni, verði frestað eftir þennan fund þar sem þetta mál verður tekið upp.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: