Alþingi: „Ég myndi segja að það sé í rauninni komin upp fullkomlega ný staða í samskiptum Íslands og ESB sem hefur afleiðingar og á að hafa afleiðingar,“ sagði Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokki á Alþingi í dag.
„Þá þýðir ekkert fyrir sitjandi ríkisstjórn að segja að þetta mál sé aðskilið öðrum málum hvað ESB varðar. Þetta er pólitísk ákvörðun ESB sem þarf að bregðast hart við og hafa víðtækar afleiðingar. Teljum við þetta ekki brot á EES-samningnum? Á þá ekki að hefja deilumál í hvelli við þetta ESB-batterí? Ég geri þá skýlausu kröfu að samningar sem hafa verið gerðir, eða hefur staðið til að gera, við ESB verði settir í ótímabundið frost. Það er ekki hægt að tala bara um nokkurra daga frestun og það vita allir hvað ég er að tala um. Ótímabundið frost, ég geri kröfu um það og sama frysting á að gilda um þá samninga sem atvinnuvegaráðherra hefur gert og utanríkisráðherra þar áður. Það á að setja þetta allt saman í frost. Bókun 35: Ég held að það sé algerlega tómt mál að tala um að hún verði hér rædd. Aðlögunarviðræðurnar: Ég hef ekki nokkra trú á því að neinn tali um það hér eftir,“ sagði Ingbjörg Davíðsdóttir.