„Ég held að þarna sé verið að vísa til þess sem í kosningabaráttunni og misserin þar á undan var kallað því nýyrði aðhald á tekjuhlið ríkissjóðs. Aðhald á tekjuhlið ríkissjóðs eru skattahækkanir, ekkert annað. Við eigum að kalla skattahækkanir skattahækkanir. Við eigum að hætta þessari orðskrípasmíði sem hefur verið viðhöfð hér um allnokkurt skeið. Við erum í dag með svona skattpíndustu þjóðum OECD. Þegar búið er að taka tillit til þess með hvaða hætti almannatryggingar eru fjármagnaðar þá var það þannig síðast þegar ég athugaði það að við vorum með næsthæsta skatthlutfallið innan OECD. Við vorum næstmest skattpíndasta OECD-þjóðin,“ sagði Bergþór Ólason Miðflokki á Alþingi.
„Í þessu samhengi finnst mér mikilvægt að segja það hér að við eigum ekki að forma reglur sem auðvelda okkur, auðvelda ríkisstjórn hvers tíma og stjórnarmeirihluta hvers tíma að bæta í á útgjaldahliðinni, bara að því gefnu að menn bæti líka í á skattahliðinni. Það er það sem setur okkur mögulega úr þeirri stöðu að vera næstmest skattpíndasta þjóð innan OECD yfir í það að vera skattpíndasta þjóð innan OECD ef illa tekst til,“ sagði Bergþór.