- Advertisement -

FLUTTU KVÓTANN OG FENGU BYGGÐAKVÓTA

Í bæjarins besta, bb.is, má lesa merka frétt hvernig útgerð getur leikið á kerfið. Með því einu að færa togara frá Hnífsdal og til Ísajarðar, innan sama sveitarfélags, fékk útgerðin 222 tonna byggðakvóta, að verðmæti 25 milljónir.

Í Bæjarins besta segir um þetta:

„Byggðarlagið Hnífsdalur fékk úthlutaðan byggðakvóta upp á  222 tonn frá Fiskistofu fiskveiðiárið 2017/18. Árið áður var byggðakvótinn 45 tonn og þar áður aðeins 8 tonn. Tvö fiskveiðiár þar á undan 2013/14 og 2014/15 var engum  byggðakvóta úthlutað til Hnífsdals.

Þessi mikla aukning kallar á skýringar. Þau svör fengust í Atvinnuvegaráðuneytinu að einkum tvennt réði því að Hnífsdalur fékk 222 tonna byggðakvóta.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Annars vegar samdráttur í kvóta og hins vegar samdráttur í vinnslu botnfiskafla. Samdráttur í kvóta Hnífdals stafar af því að kvóti var fluttur af Páli Pálssyni ÍS yfir á Stefni ÍS. Páll var skráður í Hnífsdal og Stefnir á Ísafirði. Sá kvótatilflutningur er innan sama fyrirtækis og hefur engin áhrif á fyrirtækið og framleiðslu þess. Þrátt fyrir það skapar tilflutningurinn rétt til stuðnings frá ríkinu til byggðarlagsins í formi endurgjaldslauss kvóta. Ísafjarðarbær og Fiskistofa koma að úthlutun kvótans á einstök skip og varð niðurstaðan að Páll Pálsson ÍS fékk 166 tonna byggðakvóta í þorskígildum talið, þar af 120 tonn af þorski. Áætlað verðmæti byggðakvótans er um 25 milljónir króna. Það verður að teljast arðbær hreyfing á kvóta milli skipa innan sama fyrirtækis.

Óljósara er hvers vegna samdráttur varð í botnfiskvinnslunni, en líkleg skýring er sjómannaverkfalli sem hófst í desember 2016 og stóð í 10 vikur. Unnið magn af botnfiski á tímabilinu sem haft er til viðmiðunar hefur þá orðið óvenjulágt og það skapar rétt til byggðakvóta.

Unnið er að því nú að skipta byggðakvótanum milli byggðarlaga fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.“

 

 

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: