- Advertisement -

Menning: Ljóðlistin er lífsnauðsyn – Málþing um Sigurð Pálsson

Sunnudaginn 28. október stendur Forlagið fyrir málþingi um skáldið Sigurð Pálsson (1948-2017) í Veröld – húsi Vigdísar, í samstarfi við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Málþingið er haldið í tilefni af útkomu úrvals úr ljóðum Sigurðar sem ber heitið Ljóð muna ferð og JPV útgáfa – Forlagið gefur út.

Átta samferðamenn Sigurðar munu fjalla um skáldið, vininn, kennarann og lærimeistarann. Erindi flytja Einar Kárason, Hlín Agnarsdóttir, Pétur Gunnarsson, Ragnar Helgi Ólafsson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Sjón, Sunna Dís Másdóttir og Þórarinn Eldjárn. Ingvar E. Sigurðsson leikari mun lesa upp úr ljóðaúrvalinu. Kynnir verður Kristján Þórður Hrafnsson, en hann valdi efnið í ljóðaúrvalið.

Dagskráin hefst kl. 15:00 og aðgangur er ókeypis.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: