- Advertisement -

Þriðja ljóðabók Bubba

Rof er þriðja ljóðabók Bubba Morthens á jafnmörgum árum. Fyrri bækurnar, Öskraðu gat á myrkrið og Hreistur, komu ýmsum á óvart og hlutu mikið lof. Hér horfir Bubbi til æskunnar og yrkir af hugrekki og yfirvegun um atburð sem hafði ómæld áhrif á unga sál; atburð sem settist að í hug og hjarta, varð eilífur óboðinn gestur sem sífellt reif niður sjálfsmyndina og sambönd við annað fólk.

Rof er í senn mögnuð lýsing á sálrænum afleiðingum misnotkunar og leit að friði og sátt. Ljóðin eru þarft inlnegg í umræðu samtímans en þó fyrst og fremst áminning um hve brothætt við erum, öll sem eitt.

APRÍL ER VÍST GRIMMASTUR

brumið er á greinum trjánna
þrútið af lífi
römm lykt úr móanum

Þú gætir haft áhuga á þessum

það lá í loftinu

fölbleikt er vorið
eins og lunga í spíra

frostavorið þitt.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: