- Advertisement -

Tveggja milljóna múrinn féll

Menning Gestafjöldi safna og skyldrar starfsemi var í sögulegu hámarki á síðasta ári. Ríflega 2,1 milljón gesta sótti söfn og sýningar heim á árinu. Þetta er í fyrsta sinn sem gestafjöldinn fer yfir tvær milljónir. Gestum fjölgaði um ríflega 400 þúsund milli ára, eða um 24 prósent.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Frá aldamótum hefur gestum safna og skyldrar starfsemi fjölgað nær árvisst eftir að hafa staðið að miklu leyti í stað á seinni hluta síðasta áratugar 20. aldar. Svipuðu máli gegnir um fjölda safna og sýningarstaða.
Ætla má að aukin aðsókn gesta að söfnum og skyldri starfsemi standi í beinu sambandi við aukið framboð sýningarstaða, aukna fjölbreytni sýninga og almennt fjölþættari starfsemi safna, sem og stórauknum ferðamannastraumi til og um landið.

Aðsókn að söfnum og skyldri starfsemi er langsamlega mest á höfuðborgarsvæði, eða hátt í 1,3 milljón gestir, sem samsvarar 61 af hundraði árið 2014. Aðsókn að söfnum og sýningum í öðrum landshlutum var mun minni. Langsamlega flestir sóttu heim sögusöfn og -sýningar, eða sex af hverjum tíu gestum, tveir af hverjum tíu sóttu listasöfn og -sýningar og sinn hvor einn náttúrusöfn og -sýningar og fiska- og dýragarða.
Tölur Hagstofunnar um starfsemi safna og skyldrar starfsemi taka til safna, setra, safnvísa, fiskasafna, dýragarða og grasagarða, sem og skyldra sýninga opnum almenningi sem veita upplýsingar um árlegan fjölda gesta.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: