- Advertisement -

25 milljarða skattaaukning

Þetta er gert á sama tíma og samdráttur er á verðmætustu mörkuðum ferðaþjónustu.

Karl Gauti Hjaltason.

Alþingi:

Karl Gauti Hjaltason, fulltrúi Miðflokksins í fjárlaganefnd hélt ræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs. Hér fer hluti ræðu hans:

„Af tveimur leiðum til að minnka halla ríkissjóðs hefur ríkisstjórnin valið verri kostinn, að hækka skatta á almenning og atvinnulíf. Ríkisstjórnin virðist ekki hafa burði til að leitast við að taka á stjórnlausri útgjaldaaukningu ríkisins. Og hver eru skattaáform þessa fjárlagafrumvarps og þeirra frumvarpa sem því fylgja og skattaáform sem hafa verið lögð fram að undanförnu í boði þessarar ríkisstjórnar? Það er kílómetragjaldið, 3,3 milljarðar, vörugjöld á bifreiðar, 7,5 milljarðar, fjármagnstekjuskattur á leigutekjur sem ég mun koma aðeins betur að síðar í ræðu minni, 1,6 milljarðar, afnám samsköttunar á skattþrepum milli hjóna, 2,8 milljarðar. Ég mun koma aðeins betur að því líka síðar í ræðunni. Veiðigjöldin voru tvöfölduð, 7,6 milljarðar, jöfnunargjald raforku, 1,9 milljarðar, afnám persónuafsláttar til fjármagnstekjuskatts, 700 milljónir. Samtals eru þetta, frú forseti, 25 milljarðar, skattaaukning þessarar ríkisstjórnar hingað til. Þarna er ótalið það sem ég minntist á áðan um hækkun erfðafjárskatts sem vafi leikur á um, frú forseti. Kannski getur hæstvirtur ráðherra svarað því til hér hvort það eigi að teljast sem einhvers konar breyting á forsendum erfðafjárskatts eða skattahækkun, eins og ég er búinn að leiða rök að hér með upplestri og umsögnum um erfðafjárskattinn,“ sagði Karl Gauti.

Þetta er gert á sama tíma…

Og svo: „Skattahækkanir nýrrar ríkisstjórnar nema því 25 milljörðum. Talsmenn atvinnulífsins hafa varað við afleiðingunum af skattstefnu ríkisstjórnarinnar. Stórauknar skattgreiðslur sem sækja á í ferðaþjónustu og sjávarútvegi munu koma niður á getu greinanna til fjárfestinga og nýsköpunar og hvetja til samþjöppunar, t.d. í sjávarútvegi. Þetta er gert á sama tíma og samdráttur er á verðmætustu mörkuðum ferðaþjónustu. Íslenskur iðnaður keppir á heimsmarkaði og nú sætir mikilvægur hluti hans sérstökum tollum af hálfu Evrópusambandsins sem kaus að brjóta ákvæði EES-samningsins.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: