Alþingi:
Karl Gauti Hjaltason Miðflokki sagði á Alþingi í dag:
„Við höfum á umliðnum árum horft á skipulagða glæpastarfsemi festa sig í sessi hér á landi. Fyrir rúmum áratug sögðu skýrslur lögreglu þessa hópa telja milli fimm og tíu, í næstu skýrslu voru þeir orðnir tíu, fyrir ekkert svo löngu töldust þeir vera 20 og loks nú á dögunum segir yfirmaður lögreglu að þeir gætu verið orðnir rúmlega 20. Það er fjórföldun, frú forseti. Ég hef á umliðnum árum átt sérstakar umræður um þetta málefni við ráðherra, fyrst í mars 2018, fyrir átta árum, og svo aftur nú í vor. Aðgerðir stjórnvalda til að sporna við uppgangi þessara hópa hafa ekki tekist því þeim vex fiskur um hrygg.
Smáskammtalækningar duga hér ekki. Það þarf að uppræta þessa starfsemi, nýta þarf mannskap, tæki og tól sem duga og ef réttu aðferðirnar eru ekki fyrir hendi þarf að afla þeirra, útbúa og gera það sem þarf. Greina þarf þessa hópa, tvístra þeim, uppræta þá og auðvitað brottvísa þeim sem ekki eru íslenskir ríkisborgarar. Við viljum ekki þetta glæpahyski hér.“