Alþingi:
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar og bóndi, sagði þetta á Alþingi:
„Það er enginn bóndi nema hann barmi sér og það hef ég hugsað mér að gera í þessari ræðu. Ég vil byrja á því að fagna þessari tillögu og þakka flutningsmönnum fyrir að halda þessu mikilvæga máli á lofti. Hér er verið að taka á vanda sem margir bændur þekkja af eigin raun og hafa þurft að glíma við árum saman. Ég tala af reynslu þegar ég segi að álftir hafa bæði valdið tjóni á túnum yfir varptímann og yfir varptímann eru þær einstaklega grimmar og hafa líka valdið tjóni á bústofni. Dæmi eru um að þær hafi hrakið lömb undan og jafnvel drekkt búfénaði. Þetta getur valdið verulegu fjárhagslegu tjóni. Þetta er ekki bara spurning um einhverja hektara af grasi eða kornuppskeru. Þetta snýst um afkomu búanna, nýtingu landsins og möguleika bænda til að stunda sína atvinnu því þegar ekki er úr miklu að moða verður mínusinn stærri.
Við tölum mikið um mikilvægi þess að efla íslenskan landbúnað, auka innlenda matvælaframleiðslu og styrkja fæðuöryggi þjóðarinnar. Það eru mikilvæg markmið en þá verðum við líka að vera tilbúin að horfast í augu við þær áskoranir sem fylgja því að framleiða mat hér á landi. Það gengur ekkert að hvetja bændur til aukinnar framleiðslu á sama tíma og þeir standa frammi fyrir tjóni sem þeir hafa takmörkuð úrræði til að bregðast við.
Álftum og gæsum
hefur fjölgað
verulega…
Virðulegi forseti. Ég held að við þurfum að horfa raunsætt á þetta mál. Álftum og gæsum hefur fjölgað verulega á undanförnum áratugum. Það eru auðvitað jákvæðar fréttir að fuglastofnar séu sterkir en þegar stofnar stækka og ágangur eykst á ræktarland verður að vera hægt að bregðast við. Bændur hafa reynt ýmsar aðferðir til að fæla fuglana frá, bæði sjónrænar og hljóðrænar fælingaraðferðir, en eins og fram kemur í greinargerðinni venjast fuglarnir þessu allt of fljótt og þá færist vandinn jafnvel bara yfir á næsta tún eða til næsta bónda. Það er ekki langtímalausn. Við þurfum að horfa til markvissari aðgerða og þar finnst mér þessi tillaga eiga fullt erindi.
Mér finnst líka mikilvægt að undirstrika að hér er ekki verið að leggja til að gengið verði óábyrgt á fuglastofna eða að friðun þeirra verði afnumin með öllu. Þvert á móti er gert ráð fyrir tímabundnum og skilyrtum veiðiheimildum þar sem þörf er talin á aðgerðum vegna verulegs ágangs. Jafnframt er lagt til að gerð verði stjórnunar- og verndaráætlun fyrir álftir og gæsastofna. Það er mjög mikilvægt. Við þurfum að hafa yfirsýn yfir stofnstærðir, þróun þeirra og áhrif á landbúnað og náttúru. Við þurfum að byggja ákvarðanirnar á gögnum og faglegu mati. Þannig eigum við að vinna áfram að því að vernda líffræðilegan fjölbreytileika með ábyrgri stjórnun en ekki með því að loka augunum fyrir vandanum.
Virðulegur forseti. Ég vil líka nefna að þetta snýst um sanngirni gagnvart bændum. Það er ekki eðlilegt að samfélagið setji reglur um verndun villtra fugla en láti síðan bændur eina bera fjárhagslegar afleiðingar þegar fuglarnir valda tjóni á þeirra landi. Bændur eru ekki að biðja um að náttúran verði látin víkja; þeir eru að biðja um raunhæf úrræði til að geta varið sína ræktun og sinnt sínu hlutverki í íslenskri matvælaframleiðslu.“
Virðulegur forseti. Ég tel að þessi tillaga sé mikilvægt skref í rétta átt. Nú þarf að tryggja að unnið verði hratt og markvisst að útfærslu hennar, að haft verði samráð við bændur og að faglegt mat verði lagt til grundvallar. Við eigum að geta staðið vörð um íslenska náttúru og íslenskan landbúnað, bæði í einu. Þetta eru ekki andstæð sjónarmið, þau eiga að fara saman. Ég styð því þessa tillögu heils hugar og vona að hún fái góðan hljómgrunn í nefndarstörfum og síðar hér í þingsal.