- Advertisement -

Hjá þessari konu áttu hvorki pólitískir andstæðingar né hlustendur neitt inni

„Engin stóryrði. Ekkert fimbulfamb til að hylja pólitíska nekt. Til hamingju Íslendingar.“

Þröstur Ólafsson.

Umræðan: Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifaði:

„Það er ekki plagsiður ritara að mæra eða lofa einstaka stjórnmálamenn. Allra síst þá sem lifandi eru (voru). Man eftir einni undantekningu, en sá hafði þá yfirgefið hinn pólitíka vígvöll. Reynslan hefur sagt mér að slíkt væri varhugavert. Í Spegli RÚV í gærkveldi (þriðjudags kvöldfréttir) var merkilegt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Þar var ekki farið með fleypur eða treyst á minnis- eða þekkingarleysi áheyrenda. Engin slagorð, engir einfaldir afvegaleiðandi frasar.

Undanbragðalaus andsvör, skýr hugsun og ákveðin framtíðasýn voru með þeim hætti að aðdáunarvert var. Hjá þessari konu áttu hvorki pólitískir andstæðingar né hlustendur neitt inni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þoka misturs og gleymsku skerðir minni ritara, sem man ekki eftir álíka skýrleika og festu hjá nokkrum íslenskum forsætisráðherra á þeim tíma sem hann hefur fylgst með stjórnmálum, og eru þau ár þó orðin ansi mörg. Engin stóryrði. Ekkert fimbulfamb til að hylja pólitíska nekt. Til hamingju Íslendingar.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: