Umræðan/Facebook: Þröstur Ólafsson skrifaði:

„Horfði í kvöld á þátt hjá NRK sem samanstóð af viðtölum við enn lifandi aðdáendur Hitlers (þátturinn ekki nýr, spyrjandinn David Frost). Samfara voru sýndar myndir af opinberum fundum þar sem AH var eini ræðu maðurinn. Aðdáunin og hrifning áheyrenda allt að tryllingsleg (gamalkunnugt stef). H lagði út frá tveimur aðal atriðum: Fyrra stríðið tapaðist ekki á vígvellinum. Hann tilgreindi svikarana sem þyrfti að refsa grimmilega. Þetta skyldu allir. Viðmælendur lögðu mikla áherslu á persónu töfra H, ekki hvað síst gagnvart konum. Hann náði 32% fylgi mest 1932.
Mér komu í hug myndir frá BNA frá fundum DT og hvernig hann beitir mikið almennu kunningja málfari segir einnig frá svikurunum við Bandaríkin sem þurfi að útiloka frá völdum.
Óeirða- eða slagsmálaliðsveitir nazista voru kyrfilega merktar. ICE hópar sem ganga eða aka um bandarískar götur, handtaka og skjóta, eru grímuglæddir.
Valdatöku samlíkingin var sláandi.“