- Advertisement -

Lítur Kristrún hýru auga til stefnu Miðflokksins í útlendingamálum?

Morðinginn var lýstur saklaus af innanríkisráðherra, forseta og varaforseta umsvifalaust án þess að málið væri yfir höfuð rannsakað.

Gauti B. eggertsson.

Umræðan/Facebook: „Ég er eiginlega orðlaus,“ skrifar Gauti B. Eggertsson, bróðir Dags alþingismanns Samfylkingarinnar.

„Ég var að lesa viðtal við forsætisráðherra í Heimildinni. Þar segir, bein tilvitnun:

„Kristrún nefnir Miðflokkinn og segist ekki hafa heyrt sannfærandi rök þar á bæ um efnahagsmál, en játar að flokkarnir geti náð saman í útlendingamálum.“

Úr stefnu Miðflokksins í útlendingamálum:

  • „Enginn ætti að koma til landsins til að sækja um hæli“
  • Umsækjendur eigi að vera „umsvifalaust sendir aftur“
  • Lagt til fimm ára „frysting“ á afgreiðslu hælisumsókna

Ummæli forystumanna Miðflokksins:

  • Sigmundur Davíð talar um „stjórnleysi“ og að Ísland hafi verið gert að „söluvöru erlendra glæpamanna“
  • Snorri Másson kallar hælisleitendur „ólöglega innflytjendur“
  • Snorri leggur einnig til að gera samninga við önnur ríki, gegn greiðslum, til að senda fólk úr landi — „sem ríkið telur sig ekki geta haft hér á landi“

Þetta er nákvæmlega sú leið sem Trump-stjórnin hefur valið í Bandaríkjunum. Er hugmyndin El Salvador? Eða eitthvert annað ríki sem tekur við fólki gegn greiðslu?

Snorri bætir síðan við:

„Án aðgerða vofir hrun vestrænnar siðmenningar yfir.“

Þessi hamslausa orðræða kemur ekki úr tómarúmi. Stefna og tungutak Miðflokksins koma beint úr hugmyndakistu MAGA-hreyfingarinnar í Bandaríkjunum.

Þar er:

  • Talað um innflytjendur sem glæpagengi
  • Búið að banna viðtöku flóttamanna — nema hvítra ríkisborgara Suður-Afríku
  • Gerðir samningar við erlend ríki um brottflutning fólks
  • „The Great Replacement Theory“ orðin meginstraumshugmynd — samsæriskenning um að vinstrimenn flytji inn fólk til að tryggja sér varanlegt vald og því vofi yfir ´hrun vestrænnar menningar´. Í nýrri öryggisstefnu Bandaríkjanna er sagt að þessi þróun sé í gangi í Evrópu í dag.

Afleiðingarnar eru ekki fræðilegar.

Hvaða steinsteypa er þetta eiginlega?

Í Bandaríkjunum ganga nú um götur grímuklædd, vopnuð lið, sem þurfa ekki að gera grein fyrir hver er á bak við grímuna. Þau beita hörðu og hamslausu ofbeldi, og geta gert slíkt án þess að standa skil gjörða sinna. Fyrr í vikunni var kona skotin í höfuðið fyrir að kalla til þeirra ókvæðisorð. Morðinginn var lýstur saklaus af innanríkisráðherra, forseta og varaforseta umsvifalaust án þess að málið væri yfir höfuð rannsakað. Af myndböndum að ráða keyrir konan í burtu á hægum hraða og tuddinn skýtur hana þá þrisvar í höfuðið með orðum sem vart er hafandi eftir: „you f… b….“.

Ástandið hér vestra er eldfimara en ég hef nokkru sinni upplifað, síðan ég flutti hingað fyrir um 30 árum.

Og þetta — þessi stefna, þetta tungutak, þessi hugmyndafræði — er samkvæmt formanni Jafnaðarmannaflokks Íslands sá snertiflötur sem hún „játar“ að líklegt sé að náist samstaða um?

Hvaða steinsteypa er þetta eiginlega?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: