- Advertisement -

KSÍ upplýsi hvaða landsliðsmenn brutu agareglur landsliðsins

Lárus Guðmundsson, fyrrverandi landsiðsmaður, skrifaði:

Nú er mér öllum lokið!
Orðrómur um drykkju einhverra landsliðsmanna eftir leikinn á móti Búlgaríu og 3. dögum fyrir leikinn mikilvæga gegn
Eistum, virðist staðfestur af hálfu framkvæmdastjóra KSÍ Eysteini Lárussyni sem jafnframt lýsir því að eftir samtal við hlutaðeigandi, sé málinu lokið og bara áfram gakk. Sem sagt án afleiðinga fyrir brothafa?
Ég fullyrði að slíkt risa agabrot hefði aldrei verið látið viðgangast á vakt Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar. KSÍ þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum og upplýsa um hversu alvarlegt brotið var og hverjir vor hinir brotlegu. Og síðan að grípa til viðeigandi ráðstafana sem eru síðan fordæmisgefandi. 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: