- Advertisement -

Úrhellið úr gini borgarstjóra nálgast orkunýtingarflokk

Stjórnmál:

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Það er erfitt að muna eftir jafn neikvæðum borgarstjóra og Reykjavík hefur nú. Hildur virðist nánast þráhyggjukennd í tilraunum sínum til að sannfæra borgarbúa um að framundan sé fjárhagslegt hengiflug ef hundruðum starfsmanna er ekki sópað út af vinnustöðum sínum og í atvinnuleysi.

Hildur virðist sannfærð um að hún ein sjái hlutina í réttu ljósi og á því erfitt með að taka þátt í skaplegri umræðu án þess að fetta fingur út í allt og alla með orðaflóði alvitans. Orðaflaumurinn er raunar orðinn svo mikill að innan Orku náttúrunnar munu menn vera farnir að velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að virkja úrhellið til raforkuframleiðslu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…þar sem svartsýnisspár
eru hannaðar í lit.

Í sífelldum svartnættisboðskap sínum má alls ekki minnast á hvað rekstur borgarinnar gengur heilt yfir vel og er í framför. Hún vill til dæmis ekki heyra á það minnst að uppgreiðslutími lána styttist úr ellefu árum í átta ár áður en hún tók við embætti. Það er ekki þróun sem vísar á fjárhagslegt óveður heldur á sumarblíðu hjá sveitarfélagi sem er að bæta greiðslugetu sína hratt og örugglega.

Síðan má alls ekki ræða að veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum hækkaði úr 13% í 17% og að reksturinn skili þannig meiri peningum í kassann en áður. Slíkar staðreyndir eru nefnilega afar óþægilegar fyrir þá frásögn að borgin sé í öndunarvél. Borgin virðist einfaldlega ekki hafa fengið minnisblaðið frá áróðursdeild meirihlutans um að hún eigi að vera í andnauð.

Og loks má alls ekki minnast á framlegðina sem hlutfall af tekjum. Hún hækkaði úr 18% í 22%, sem er sterkasta niðurstaða á þennan mælikvarða síðustu fimm árin. Reksturinn er sem sagt að verða skilvirkari, afkoman fyrir fjármagnsliði að styrkjast og rekstrargrunnurinn að batna. Það eru auðvitað ekki þær tölur sem maður býst við frá borg sem á samkvæmt neyðarlýsingum meirihlutans að vera vart með lífsmark.

Það er því skondið að hlusta á allar hrakspárnar samhliða þessum tölum. Þær minna helst á mann sem stendur úti í sólskini, bendir á heiðskýran himinn og hrópar: „Það er greinilega fellibylur á leiðinni!“

Tölurnar sýna ótvírætt að reksturinn er heilbrigður og á uppleið. Enga kreppu að finna í bókhaldinu. Hún er aftur á móti uppi um alla veggi á skrifstofu Hildar, þar sem svartsýnisspár eru hannaðar í lit.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: