Illugi Jökulsson setti þetta á Favebook:
„Og kríterían varðandi þessi störf sem við erum að leggja niður í dag, hún var annars vegar sú að þetta væru stöðugildi sem væru ekki í beinni þjónustu við íbúa, og hins vegar að þau væru ekki tekjuskapandi.“
Einar Þorsteinsson forseti hins nýja borgarstjórnarmeirihluta í Reykjavík sendir burtreknu starfsfólki Reykjavíkur falleg skilaboð. Einar heldur sínu vellaunaða starfi. Hvort skyldi hann vera í beinni þjónustu við íbúa eða er hann kannski tekjuskapandi?