Umræðan:
Jóhann Þorvarðarson skrifaði:
Undanfarið hafa ýmsir sem voru kærðir, sóttir til saka og dæmdir vegna bankahrunsins stigið fram og fullyrt að nú sé kominn tími til að rannsaka rannsakendurna. Staðhæft er að embætti sérstaks saksóknara hafi beitt vafasömum vinnubrögðum og jafnvel látið hefndarhug almennings ráða för fremur en lög og rétt.
Það er athyglisverð samsæriskenning að þegar menn tapa fyrir dómstólum landsins sé besta vörnin fólgin í því að gera réttvísina tortryggilega. Ef dómararnir höfðu ekki rétt fyrir sér, ef rannsakendurnir voru spilltir og ef kerfið var gallað, þá virðist niðurstaðan vera sú að sökina beri allir nema bófarnir sjálfir.
Vissulega er
ekkert kerfi
fullkomið.
Embætti sérstaks saksóknara er nú skotspónn lögmanna þriggja dæmdra manna: Ólafs Ólafssonar, Hreiðars Más Sigurðssona og Jónasar Guðmundssonar. Af málflutningi þeirra mætti helst ætla að embætti sérstaks saksóknara hafi ekki verið stofnað til að rannsaka möguleg lögbrot í aðdraganda hrunsins heldur sem einhvers konar samsæri gegn hrunverjunum.
Slíkar fullyrðingar krefjast þó meira en háværra yfirlýsinga. Þær krefjast sannana!
Vissulega er ekkert kerfi fullkomið. Dæmi eru um að rannsóknaryfirvöld hafi brugðist skyldum sínum. Núverandi dómsmálaráðherra fékk til dæmis þungt högg í Hæstarétti eftir að hafa staðið að ákæru sem reyndist lygin ein. Það mál sýnir að svartir sauðir leynast innan um hjá ákæruvaldinu og að enginn embættismaður er hafinn yfir gagnrýni.
En það er gríðarlegur munur á einstökum mistökum svartra sauða og því að halda fram að heilt embætti hafi verið spillt í grunninn.
Mál þessara manna voru ekki rannsökuð af einum ofsafengnum rannsóknarmanni í dimmum kjallara. Þau voru rannsökuð af stórum hópi sérfræðinga, fóru í gegnum ítarlega meðferð hjá ákæruvaldinu og voru síðan reifuð og metin fyrir dómstólum á mörgum stigum. Sakfellingarnar byggðust á miklu magni gagna, vitnisburða og lagalegrar skoðunar.
Fleiri dæmdir glæponar hafa tekið undir þennan söng, þar á meðal Karl Wernersson og Guðmundur Hjaltason. Kvartanakórinn er orðinn að barlóma kvintett. Sameiginlegt stef virðist vera að ábyrgðin liggi alls staðar nema hjá þeim sem voru sakfelldir.
Raunar mætti halda
af málflutningi
þessara bófa.
Það er auðvitað mannlegt að vilja endurskrifa eigin sögu. Fæstir dæmdra afbrotamanna vakna á morgnana og hugsa: „Já, ég hafði rangt fyrir mér og dómstólarnir komust að réttri niðurstöðu.“ En sú staðreynd að menn séu ósáttir við dóma sína breytir ekki dómunum sjálfum.
Raunar mætti halda af málflutningi þessara bófa að stærsta fórnarlamb hrunsins hafi ekki verið almenningur sem missti sparnað, atvinnu eða heimili, heldur glæponarnir sem virðast þjást af alvarlegu ábyrgðarofnæmi.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn tekur undir árásirnar á embætti sérstaks saksóknara er hætta á að rugla saman réttmætri gagnrýni og tilraunum til að endurskrifa söguna án þess að leggja fram sannanir. Það er eðlilegt að skoða í saumana rannsóknir ef tilefni er til. En það er óeðlilegt að láta sem dómar, rannsóknir og umfangsmikil sönnunargögn skipti engu máli þegar niðurstaðan fellur mönnum illa.
Maður fær stundum á tilfinninguna að sumir telji að bankahrunið hafi einfaldlega gerst af sjálfu sér. Að enginn hafi tekið ákvarðanir og enginn beri ábyrgð. Í þeirri sögu eru sökudólgarnir alltaf einhverjir aðrir en bófarnir sjálfir.
Ég verð að segja að þeir bófar og lögmenn sem hér halda úti ósönnuðum áróðri eru sannkallað afbragð í þeirri list að tortryggja störf opinberra starfsmanna og kasta rýrð á heilindi þeirra, án þess að færa fyrir því haldbærar sannanir.